Sport

Gunnar Nelson: Svona er þetta ferðalag

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gunnar Nelson.
Gunnar Nelson. Vísir/Getty
Blaðamaður bíður rólegur eftir að formlegri dagskrá á fjölmiðladegi ljúki til að spjalla við Gunnar Nelson sem er búinn að sitja á barstól og svara spurningum fréttamanna í 45 mínútur. Gunnar er í gráum joggingbuxum, blárri þægilegri peysu, strigaskóm og með úfið hár eins og hann hafi verið að stíga fram úr rúminu. Fjölmiðlahluti bardagalífsins hefur aldrei verið í miklu uppáhaldi hjá honum en svona reynslubolti lætur þetta ekkert á sig fá.

„Þetta er alltaf voðalega svipað og tiltölulega auðvelt,“ segir Gunnar sallarólegur. „Þetta er líklega síðasta viðtalið mitt í dag og við byrjuðum nú bara upp úr hádegi. Ég get ekki kvartað.“

Mótherji hans í kvöld, Alan Jouban, er fyrirsæta og mætti eins og klipptur út úr tískutímariti. Því var skondin sjón að sjá þá saman á pallinum – tveir ólíkir menn í ólíkum fötum.

Sjá einnig:Kavanagh: Gunnar lærði af töpunum

„Hann er náttúrlega Versace-módel – helvíti huggulegur. Ég veit ekki hvort maður hefur það í sér að vera að slá hann of mikið í andlitið og eyðileggja eitthvað meira fyrir honum en bara UFC-ferilinn. Það er kannski óþarfi,“ segir Gunnar skælbrosandi.

Vísir/Getty
Með sinn eigin stíl

Gunnar hefur oftast hugsað nánast eingöngu um sjálfan sig þegar kemur að undirbúningi fyrir bardaga. Hann hefur svo oft lent í því að fá nýjan mótherja nánast á síðustu stundu að það hefur engu skilað að undirbúa sig sérstaklega fyrir einhvern ákveðinn mann. Hann er þó að undirbúa sig vel fyrir spörkin hans Joubans en segir annars allt með hefðbundnu sniði.

„Þetta er allt í rauninni eins og við höfum alltaf haft þetta. Maður horfir á nokkra bardaga með mótherjanum og reynir aðeins að láta líkja eftir vopnum hans þegar maður er að æfa. Við erum samt ekki að búa til leikáætlun í kringum það sem hinn maðurinn gerir. Það höfum við aldrei gert. Þetta er svipað og og alltaf. Maður horfir aðeins á hreyfingarnar hans og virkjar aðeins viðbrögðin við þeim,“ segir Gunnar.

Sjá einnig:Búrið: Gunnar er með þetta skandinavíska, slutty viking útlit

Jouban vill halda bardaganum standandi því hann er góður að slá og sparka – sérstaklega sparka. Gunnar er hvergi banginn við að standa á móti honum eða hverjum sem er því hann er alltaf að bæta sig standandi. Staðreyndin er einfaldlega sú að Gunnar er nákvæmastur allra í veltivigtinni þegar kemur að því að slá frá sér og landa höggum.

„Ég er með minn eigin stíl og ég held að fólk hafi bara ekki séð neitt sérstaklega mikið af honum. Hann er alltaf að þróast. Ég fékk aðeins að nota hann í síðasta bardaga sem gaf mér líka tilfinningu fyrir því hvernig hann virkar í bardaga. Það var gott því það er öðruvísi að gera þetta á æfingum heldur en í bardaga,“ segir Gunnar.

Vísir/Getty
Sér beltið í hillingum

Einn helsti löstur Alans Jouban í búrinu er hvað hann byrjar oft hægt og það ætlar Gunnar að nýta sér. „Mér finnst það líklegt. Ég fer yfirleitt inn með sterka byrjunar­árás. Mér finnst það skipta máli og það er líka minn stíll. Ég reyni að klára bardagana mína þegar ég sé opnanir. Þær eru mjög víða og svo býr maður sjálfur til opnanir. Ég á sennilega eftir að byrja nokkuð sterkt,“ segir hann.

John Kavanagh, þjálfari Gunnars, sagði í viðtali við íþróttadeild að hann sjái Gunnar fá titilbardaga í lok árs ef hann hefur betur gegn Jouban og fá svo stóran bardaga í sumar sem hann klári með sigri. Gunnar er ekkert að hlaupa fram úr sér en er að hugsa svipaða hluti.

„Ég er ekkert að fara að hætta núna. Ég er að vinna mig upp enn þá. Svona er þetta ferðalag. Ég horfi ekkert fram hjá Alan en ég ætla að reyna að ná tveimur bardögum til viðbótar á árinu. Að sjálfsögðu mun ég reyna að vinna þá og þá gæti ég vel trúað að maður gæti barist um titilinn á næsta ári,“ segir Gunnar Nelson.

Vísir/Getty
MMA

Tengdar fréttir

Mest stressaður þegar Gunni berst

Jón Viðar Arnþórsson, formaður Mjölnis og góðvinur Gunnars Nelson, stendur ávallt við búrið þegar Gunnar berst. Hann segir Gunnar vera bestu auglýsingu sem í boði er fyrir Mjölni sem hefur farið úr litlum sal í höll á tæpum áratug.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×