Íslenski boltinn

FH gerði góða ferð í Reykjaneshöllina

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Atli Viðar Björnsson skoraði fjórum mínútum eftir að hann kom inn á.
Atli Viðar Björnsson skoraði fjórum mínútum eftir að hann kom inn á. Vísir/Stefán
FH er komið á topp riðils 1 í A-deild Lengjubikars karla í fótbolta eftir 3-2 sigur á Keflavík í Reykjaneshöllinni í dag.

Fyrri hálfleikur var markalaus en mörkum rigndi í seinni hálfleik.

Atli Viðar Björnsson kom inn á sem varamaður í hálfleik og kom FH yfir strax á fjórðu mínútu seinni hálfleiks.

Sex mínútum síðar jafnaði Leonard Sigurðsson metin með óverjandi skoti af löngu færi efst í markhornið.

Þremur mínútum síðar kom Steven Lennon FH yfir á nýjan leik með marki úr vítaspyrnu.

Halldór Orri Björnsson gerði út um leikinn þremur mínútum fyrir leikslok með viðstöðulausu skoti en Adam Árni Róbertsson hafði þó tíma til að minnka muninn á þriðju mínútu uppbótartíma.

Upplýsingar af gangi leiksins voru fengnar af Fotbolti.net




Fleiri fréttir

Sjá meira


×