Viðskipti innlent

Ráðherrar ekki ennþá fundið meira vegafé

Kristján Már Unnarsson skrifar
Svavar Pétur Eysteinsson, bóndi á Karlsstöðum, sýnir stjórnvöldum hug sinn en myndin er frá mótmælum í Berufirði þar sem hringveginum hefur tvívegis verið lokað.
Svavar Pétur Eysteinsson, bóndi á Karlsstöðum, sýnir stjórnvöldum hug sinn en myndin er frá mótmælum í Berufirði þar sem hringveginum hefur tvívegis verið lokað. Mynd/Ólafur Björnsson
Fjármálaráðherra og samgönguráðherra hafa enn ekki komist að niðurstöðu um aukin framlög til vegamála. Rúm vika er frá því ríkisstjórnin fól þeim Benedikt Jóhannessyni og Jóni Gunnarssyni að finna viðbótarfjármagn og kom þá fram að þeir ætluðu að taka nokkra daga í verkefnið.

Þær upplýsingar fengust úr innanríkisráðuneytinu að viðræður standi enn milli fjármálaráðuneytis og samgönguráðuneytis og vonist menn til að niðurstaða fáist fyrir næstu helgi.

Eftir að frétt Stöðvar 2 birtist í byrjun mánaðarins, um hvernig ríkisstjórnin hygðist skera tíu milljaðra króna á þessu ári af nýsamþykktri samgönguáætlun, hefur mótmælum rignt yfir ríkisstjórn og Alþingi. Á Austurlandi hafa íbúar fylgt eftir kröfum sínum með því að loka hringveginum um Hornafjarðarfljót og tvívegis um Berufjörð. Á Vestfjörðum stendur yfir undirskriftasöfnun „Ákall til Íslendinga” þar sem þess er krafist að staðið verði við fyrirheit um endurbætur Vestfjarðavegar um Gufudalssveit.

Jón Gunnarsson samgönguráðherra sagði eftir ríkisstjórnarfund í síðustu viku að málið væri mjög brýnt. Mjög góður skilningur væri á þessu við ríkisstjórnarborðið.

„Við horfum upp á að það urðu mikil vonbrigði mjög víða á landinu vegna þess að fjárlög uppfylltu ekki nema lítinn hluta af metnaðarfullri samgönguáætlun síðasta árs. Við því ætlum við að reyna að bregðast núna,” sagði ráðherrann.


Tengdar fréttir

Mótmæli sveitunga munu engu breyta

Samgönguráðherra segist skilja vel gremju fólks vegna niðurskurðar á samgönguáætlun. Um 200 íbúar í Berufjarðarbotni og nærsveitum lokuðu þjóðvegi 1 í tvær klukkustundir í gær með um 60 bílum.

Reiði í öllum flokkum yfir niðurskurði Jóns

Um tíu milljarða króna niðurskurður samgönguáætlunar á þessu ári leggst þungt á þingmenn og sveitarstjórnarfólk um allt land. Teitur Björn Einarsson þingmaður segir veg um Teigsskóg halda íbúum í heljargreipum.

Langlundargeð íbúa á þrotum

"Ekki er aðeins um öryggismál að ræða fyrir íbúa og ferðamenn á landinu heldur einnig brýnt byggðamál þar sem langlundargeð íbúa þar sem ástandið er verst er fyrir löngu þrotið,“ segir byggðarráð Húnaþings vestra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×