Erlent

BBC biðst afsökunar á umdeildri færslu um guðlast

Bjarki Ármannsson skrifar
Frá kröfugöngu í Islamabad í vikunni þar sem kallað var eftir því að efni sem inniheldur guðlast verði fjarlægt af samfélagsmiðlum.
Frá kröfugöngu í Islamabad í vikunni þar sem kallað var eftir því að efni sem inniheldur guðlast verði fjarlægt af samfélagsmiðlum. Vísir/AFP
Breska ríkisútvarpið baðst í dag afsökunar á færslu á asískri samfélagsmiðlasíðu sinni þar sem lesendur voru spurðir hver þeim þætti „rétta refsingin“ við guðlasti eiga að vera.

Færslan átti að vekja athygli á þætti ríkisútvarpsins þar sem meðal annars var fjallað um stjórnvöld í Pakistan og viðhorf þeirra gagnvart guðlasti. Þar í landi getur dauðarefsing legið við guðlasti og Nawaz Sharíf forsætisráðherra hefur kallað eftir því að tekið verði harðar á því á samfélagsmiðlum.

Færsla breska ríkisútvarpsins hitti alls ekki í mark og var gagnrýnd af baráttumönnum fyrir auknum mannréttindum í Mið-Austurlöndum sem sögðu hana gefa í skyn að refsingar við guðlasti ættu einhvern tímann við.

Í afsökunarbeiðni ríkisútvarpsins kom fram að spurningin hefði átt að vera ögrandi en að hún hefði ekki verið nógu vel orðuð.

Bretar felldu bann gegn guðlasti úr gildi árið 2009 og Íslendingar árið 2015. Einn núlifandi Íslendingur hefur hlotið dóm fyrir guðlast en það var Úlfar Þormóðsson, þáverandi ritstjóri tímaritsins Spegilsins, árið 1983.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×