Körfubolti

Þrítugasta þrennan hjá geggjuðum Westbrook en Warriors með kaldan Curry tapaði

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Russell Westbrook hlóð í 30. þrennuna sína á leiktíðinni í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þegar hann skoraði 43 stig, tók ellefu fráköst og gaf tíu stoðsendingar í 109-106 sigri Oklahoma City Thunder á Utah Jazz á heimavelli.

Westbrook var, eins og gefur að skilja, allt í öllu í leiknum en hann skoraði tólf af 43 stigum sínum á síðustu tveimur mínútunum er hann leiddi sína menn til fjórða sigurleiksins í röð.

Westbrook er búinn að ná þrennu í síðustu fjórum leikjum í röð og eru þær í heildina orðnar 67 á ferlinum hjá honum. Þetta var að auki í nótt fimmti leikurinn þar sem hann skorar að minnsta kosti 40 stig í þrennu.

OKC færist nær liðunum fyrir ofan sig í vestrinu í baráttunni um betra sæti fyrir úrslitakeppnina en liðið er í sjöunda sæti með 35 sigurleiki, einum leik á eftir Memphis og Clippers og tveimur á eftir Utah Jazz.

Golden State Warriors tapaði aðeins sínum tíunda leik í vetur þegar það lá í valnum á útivelli gegn Washington Wizards í nótt, 112-108. Mikið þurfti til hjá Golden State til að tapa leiknum.

Silfurlið síðasta tímabils missti Kevin Durant út af meiddan eftir aðeins 93 sekúndur þegar Zaza Pachulia, leikmaður Golden State, datt á hann. Þá var Steph Curry ískaldur fyrir utan þriggja stiga línuna annað kvöldið í röð og hitti aðeins úr tveimur af níu þriggja stiga skotum sínum.

Þrátt fyrir að vera án Durants og með ískaldan Curry fékk Golden State samt tækifæri til að komast yfir þegar tíu sekúndur voru eftir en Curry klikkaði fyrir utan þriggja stiga línuna. Washington kláraði leikinn á vítalínunni.

„Þetta er skot sem ég tek vanalega þannig ég var fullur sjálfstrausts. Maður lifir fyrir þessar stundir en við verðum að lifa með þessum úrslitum,“ sagði Steph Curry eftir leik.

John Wall fór á kostum fyrir Washington en leikstjórnandinn gaf 19 stoðsendingar í leiknum sem er persónulegt met. Bradley Beal var stigahæstur heimamanna með 25 stig.

Úrslit næturinnar:

Washington Wizards - Golden State Warriors 112-108

Detroit Pistons - Portland Trail Blazers 120-113

Chicago Bulls - Denver Nuggets 107-125

Memphis Grizzlies - Phoenix Suns 130-112

OKC Thunder - Utah Jazz 109-106

LA LAkers - Charlotte Hornets 104-109

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×