Golf

„Miðla því sem ég lærði af Phil Mickelson til íslenskra kylfinga“

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hinn finnski Jussi Pitkanen, sem nýverið var ráðinn afreksstjóri Golfsambands Íslands, segir að það búi mikið í íslenskum kylfingum.

Pitkanen er ætlað að styrkja íslenska afrekskylfinga en Ísland á marga unga og efnilega kylfinga. „Séð utan frá eru hér mjög margir áhugamenn á heimsmælikvarða,“ segir hann.

Þær Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, sem keppir á LPGA, og Valdís Þóra Jónsdóttir, sem keppir á Evrópumótaröðinni, standa fremst íslenskra kylfinga í dag og segir Jussi að hann komi því til skjalanna á góðum tímapunkti.

„Íslenskt golf er vissulega á uppleið. Það skaðar ekki að telja sig með þeim bestu á heimsvísu en það er líka mikilvægt að styðja við þá viðleitni.“

Hann segir að það sem hann ætlar sér helst að einbeita sér að er að bæta stutta spilið hjá leikmönnum, en einnig undirbúning og skipulagning þeirra fyrir mót, sem og form og hugarfar.

„Í stað þess að beina athyglinni að einu atriði til framfara eru allnokkrir þættir sem við getum bætt lið fyrir lið. Þannig bætum við frammistöðuna,“ segir hann.

Pitkanen er búsettur í Írlandi þar sem hann hefur starfað um árabil, en hann vann bæði með PGA-samtökunum í Írlandi og Bretlandi. Þar kynntist hann Dave Pelz, einum virtasta golfsérfræðingi heims, sem hefur unnið með mörgum af þekktustu kylfingum heims.

„Bestu spilararnir sem ég hef haft tækifæri til að fylgjast með er Phil Michelson. Hann kom ekki til að fá leiðbeiningar heldur fékk ég tækifæri til að horfa á hann æfa,“ segir hann en Mickelson hefur um árabil verið í fremstu röð í heiminum.

„Lexíurnar sem ég lærði af því sem hann gerði með fyrrverandi yfirmanni mínum, Dave Pelz, munu alltaf fylgja mér. Ég mun miðla þeim til íslenskra spilara. Það er engin tilviljun að hann hafi náð þeim árangri sem raun ber vitni.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×