Viðskipti innlent

Kaffitár búið að fá tölvupósta og fleiri gögn frá Isavia

Haraldur Guðmundsson skrifar
Aðalheiður Héðinsdóttir, stjórnarformaður Kaffitárs
Aðalheiður Héðinsdóttir, stjórnarformaður Kaffitárs Vísir/Stefán
Stjórnendur Kaffitárs eru enn að kalla eftir gögnum frá Isavia um forval ríkisfyrirtækisins vegna útleigu á veitingarými í Leifsstöð sem lauk í september 2014. Isavia afhenti fyrirtækinu í janúar tölvupóstssamskipti, fundargerðir, samninga og önnur gögn sem tengjast samkeppninni um pláss í flugstöðinni og telja stjórnendur Isavia að búið að sé að afhenda öll gögn málsins. Kaffitár hefur þrátt fyrir það óskað eftir enn frekari gögnum.

Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í júní í fyrra að afhenda bæri gögn vegna forvalsins sem Kaffitár hafði þá óskað eftir. Málið vakti mikla athygli enda krafðist Aðalheiður Héðinsdóttir, stjórnarformaður Kaffitárs, rökstuðnings Isavia fyrir þeirri ákvörðun að neita fyrirtæki hennar um veitingarými í flugstöðinnni og aðgangs að gögnum sem aðrir umsækjendur sendu inn í forvalinu. Kaffitár var á þeim tíma með rekstur í Leifsstöð. Alls féllu sjö úrskurðir eða dómar í málinu og varaði Samkeppniseftirlitið við því að afhending gagnanna gæti verið brot á samkeppnislögum.

Í frétt DV í október í fyrra kom fram að starfsmenn Kaffitárs höfðu þá ekki skoðað forvalsgögnin sem voru afhent þeim þremur mánuðum áður. Í svari Isavia við fyrirspurn Vísis segir að Kaffitár hafi óskað eftir frekari gögnun þann 5. desember og mánuði síðar fengið meðal annars tölvupóstssamskipti ríkisfyrirtækisins við aðra umsækjendur í forvalinu.

„Isavia hefur nú afhent Kaffitári öll gögn sem tengjast samkeppninni sem fyrirtækið tók þátt í. Þannig hefur Isavia afhent enn meiri gögn en upplýsingalög kveða á um að skuli afhenda,“ segir í svarinu.

„Beiðni Kaffitárs ehf. tók til nokkurs magns gagna sem Isavia er einungis að hluta til skylt að veita aðgang að á grundvelli upplýsingalaga, en að hluta er um vinnugögn að ræða sem undanþegin eru upplýsingarétti. Isavia ákvað engu að síður að veita fyrirtækinu aukinn aðgang, í samræmi við ákvæði 11. gr. laganna, að umbeðnum gögnum, að því marki sem aðrar reglur og lög standa því ekki í vegi.“

Í svari Isavia segir að ríkisfyrirtækið hafi haft samráð við aðra umsækjendur og strikað yfir viðkvæmar viðskiptaupplýsingar um einstök fyrirtæki. Þetta hafi verið gert með hliðsjón af bréfi Samkeppniseftirlitsins til Kaffitárs ehf. og Isavia frá 8. júlí 2016 þar sem reifuð eru sjónarmið um gögn sem þykja sérstaklega viðkvæm í samkeppnislegu tilliti þannig að miðlun þeirra geti falið í sér samkeppnisröskun í skilningi 10. gr. Samkeppnislaga.

Aðalheiður Héðinsdóttir staðfestir í samtali við Vísi að fyrirtækið hafi á óskað eftir enn frekari gögnum. Engin niðurstaða sé því komin í það hvort skaðabótamál gegn Isavia verði höfðað. 

„Eitt skref í einu. Það verður örrugglega ekki niðurstaða fyrr en eftir einhver ár. Við fengum gögnin og kölluðum þá eftir umframgögnun og það var nú dráttur á því. Svo komu þau núna i janúar og okkur þótti þá ástæða til að kalla eftir enn frekari gögnum,“ segir Aðalheiður.

Þið hafið þá ekki komist að niðurstöðu um hvort skaðabótamál verði höfðað gegn Isavia?

„Við viljum ekkert segja um þetta á þessu stigi. Það er von innan tíðar á yfirlýsingu og við viljum bíða með þetta,“ segir Aðalheiður.  


Tengdar fréttir

Íhuga skaðabótamál gegn Isavia

Að minnsta kosti þrjú fyrirtæki hafa til skoðunar að höfða skaðabótamál gegn Isavia vegna forvals um verslunarpláss í Leifsstöð sem fram fór árið 2014.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×