Körfubolti

Fékk 45 milljónir króna fyrir tveggja tíma vinnu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Calderon hefur meðal annars spilað með Lakers, Knicks og Dallas á sínum ferli.
Calderon hefur meðal annars spilað með Lakers, Knicks og Dallas á sínum ferli. vísir/getty
Ferill Jose Calderon hjá Golden State Warriors var ekki nema tveir klukkutímar að lengd. Þessir tveir tímar gáfu þó vel í aðra hönd.

Vegna meiðsla Kevin Durant ákvað félagið að semja við Calderon. Sá hefur liklega verið í sjöunda himni en allt breyttist tveimur tímum síðar.

Þá náði Warriors að semja við Matt Barnes og losaði sig því við Calderon um hæl.

Hann fékk 45 milljónir króna fyrir þessa örstuttu dvöl í herbúðum Warriors og það var meira að segja gerð treyja fyrir hann eins og sjá má hér að neðan. Treyjan var aldrei notuð.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×