Körfubolti

Westbrook á ekki skilið að vera valinn bestur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Westbrook er líklega miður sín yfir orðum Cuban. Eða hvað?
Westbrook er líklega miður sín yfir orðum Cuban. Eða hvað? vísir/getty
Russell Westbrook, leikmaður Oklahoma City Thunder, er að eiga einstakt tímabil í NBA-deildinni en hann er samt ekki að ná því að heilla Mark Cuban, eiganda Dallas Mavericks.

Cuban segir að Westbrook eigi ekki skilið að vera valinn bestur í deildinni nema lið hans vinni 50 leiki á tímabilinu og að Thunder vinni að minnsta kosti eina umferð í úrslitakeppninni.

Westbrook hefur spilað ótrúlega í vetur. Er kominn með 30 þrefaldar tvennur og er að elta met Oscar Robertson sem náði 41 á einu tímabili.

Westbrook er stigahæstur í deildinni með 31,7 stig að meðaltali og er líka með 10,1 stoðsendingu og 10,7 fráköst að meðaltali í leik. Fáranlegar tölur.

En það er ekki nóg fyrir Cuban. Hann vill meira og segir að valið standi á milli þeirra James Harden og LeBron James að sínu mati.

Thunder er 35-28 þegar 19 leikir eru eftir af tímabilinu.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×