Sport

Nú er hægt að borða eins og Tom Brady

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Tom Brady í vinnunni. Þar hefur hann staðið sig vel lengi.
Tom Brady í vinnunni. Þar hefur hann staðið sig vel lengi. vísir/getty
Fimmfaldi NFL-meistarinn Tom Brady er enn á toppnum þó svo hann sé orðinn 39 ára. Hann hefur meðal annars þakkað mataræðinu fyrir að vera í eins góðu formi og hann er í.

Brady hefur verið með sinn eigin heilsukokk sem hefur séð um að matreiða fyrir hann heilsu- og orkuríka rétti.

Nú er Brady farinn í samstarf við fyrirtækið Purple Carrot sem sérhæfir sig í mat fyrir vegan-fólk. Búið er að hanna „TB12 Performance Meal Kit“ sem er matur eins og Brady borðar.

Hægt er að panta matinn hans Brady og fá hann sendan heim fyrir 8.500 kr. á víku. Í boxinu eru þrjár máltíðir sem duga fyrir tvo.

Brady segir að máltíðirnar eigi að hjálpa fólki bæði í leik og starfi til þess að líða vel og vera orkuríkt.

Þetta á alveg örugglega eftir að slá í gegn.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×