Leikjavísir

Shadow of War bætir hið frábæra Nemesis-kerfi

Samúel Karl Ólason skrifar
Í Shadow of War vinna þeir Talion og Celebrimbor að því að mynda annan her til þess að sigra Sauron, áður en hann getur herjað á allan Miðgarð.
Í Shadow of War vinna þeir Talion og Celebrimbor að því að mynda annan her til þess að sigra Sauron, áður en hann getur herjað á allan Miðgarð. Monolith Productions
Monolith Productions birtu í dag 16 mínútna myndband úr leiknum Shadow of War, framhaldi Shadow of Mordor, sem kemur út í ágúst. Þar má sjá hvernig Nemesis-kerfi leiksins hefur verið betrumbætt til muna en leikurinn virkar við fyrstu sín vera alveg einstaklega gagnvirkur.

Það er líka dreki í myndbandinu, sem hægt er að hoppa á bakið á og nota til að brenna orka í tugatali.

Það sem Nemesis-kerfið gerir er að skapa einstaka sögu í hverri spilun með því að spila með metorðastiga orka og skapa nýja svokallaða kafteina að handahófi. Kerfið bíður upp á hinar skemmtilegustu uppákomur og samræður við orka. Það gefur spilurum virkilega þá tilfinningu að þeir séu virkir þátttakendur í söguheiminum.

Myndbandið er þó uppstillt að einhverju leyti og er því ætlað að sýna fram á hvað Nemesis-kerfið býður upp á.

Í Shadow of War vinna þeir Talion og Celebrimbor að því að mynda annan her til þess að sigra Sauron, áður en hann getur herjað á allan Miðgarð. Shadow of Mordor gekk einmitt út á það sama, en hér virðist sem að eitthvað sé hægt að gera við herinn. Sem var ekki hægt í Shadow of Mordor.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×