Glamour

Victoria's Secret sýningin í ár verður í Sjanghæ

Ritstjórn skrifar
Englarnir við opnun fyrstu Victoria's Secret búðarinnar í Sjanghæ.
Englarnir við opnun fyrstu Victoria's Secret búðarinnar í Sjanghæ. Mynd/Getty
Samkvæmt WWD mun Victoria's Secret halda tískusýninguna sína frægu í Sjanghæ þetta árið. Í fyrra var hún haldin í París en fyrir utan það fer hún yfirleitt fram í Bandaríkjunum. 

Frá árinu 2015 hefur Victoria's Secret verið að opna búðir í Kína og því greinilegt að þau séu að treysta á þann markað í framtíðinni. Hagnaður fyrirtækisins hefur dregist saman á seinustu árum. 

Um þessar mundir eru nokkrar af Victoria's Secret englunum staddar í Sjanghæ til þess að vera viðstaddar opnun nýjustu verslunarinnar þar.






×