Viðskipti innlent

Skotsilfur Markaðarins: Katrín Olga kannar framboð til stjórnar Vodafone

Ritstjórn Markaðarins skrifar
Bandaríkjamaðurinn John P. Madden, framkvæmdastjóri hjá Kaupþingi, hefur gegnt starfi stjórnarmanns hjá Arion banka frá 15. september á síðasta ári.

Er hann eini fulltrúi Kaupþings í átta manna stjórn bankans. Það vekur athygli í nýjum ársreikningi Arion banka að þar kemur fram að Madden hafi ekki fengið neinar launagreiðslur fyrir stjórnarstörf sín á árinu 2016. Á meðan hann fékk ekkert greitt fyrir stjórnarsetuna þá fá hins vegar aðrir erlendir stjórnarmenn, sem eru tveir talsins, greitt tvöfalt á við það sem borgað er til íslenskra stjórnarmanna bankans.

Katrín Olga vill í stjórn Vodafone

Katrín Olga Jóhannesdóttir, formaður Viðskiptaráðs og stjórnarmaður í Icelandair Group, hefur á síðustu vikum kannað hvort hún njóti stuðnings til að bjóða sig fram í stjórn Vodafone á næsta aðalfundi félagsins. Þannig hefur hún, samkvæmt heimildum Markaðarins, meðal annars átt samtöl við forstjóra og stjórnarformann félagsins í tengslum við þau áform.

Ekki fylgir sögunni hvort einhverjir í hópi stærstu hluthafa Vodafone séu líklegir til að veita henni brautargengi. Sæti hennar í stjórn Icelandair Group þykir hins vegar í hættu í ljósi þess að búist er við að fjárfestar félagsins vilji fá inn ný andlit í stjórn á komandi aðalfundi.

Katrín Olga Jóhannesdóttir, formaður Viðskiptaráðs og stjórnarmaður í Icelandair Group.
Verður Sigurður Gísli með?

Gunnar Smári Egilsson, ritstjóri Fréttatímans, fer nú mikinn á Facebook í hópfjármögnun sinni á nýju útgáfufélagi sem hann vill stofna utan um Fréttatímann. Af lýsingum hans að dæma duga tekjur af auglýsingasölu einungis fyrir prentun og dreifingu blaðsins.

Þá er eftir öll ritstjórnin sem blés út eftir að Gunnar og Þóra Tómasdóttir tóku við blaðinu fyrir rétt rúmu ári. Ekki hefur hins vegar komið fram hvort fjárfestirinn Sigurður Gísli Pálmason, einn eigenda IKEA á Íslandi og helsti fjárhagslegi bakhjarl Fréttatímans, ætli að taka þátt í stofnun félagsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×