Golf

Ólafía: Mun aldrei gleyma vippunni á átjándu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir horfir á eftir höggi á opna ástralska mótinu.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir horfir á eftir höggi á opna ástralska mótinu. vísir/Getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir styrkti stöðu sína á LPGA-mótaröðinni með góðum árangri í Ástra­líu um helgina, þar sem annað mót tímabilsins á LPGA-mótaröðinni fór fram. Hún hafnaði í 30.-39. sæti og fékk fyrir það 995 þúsund krónur í aðra hönd.

Ólafía er því með samtals um 1,3 milljón króna í verðlaunafé eftir fyrstu tvö mótin hennar á tímabilinu en það er betri árangur en hún þorði sjálf að vona fyrirfram.

„Þetta er bara geggjað. Það telur í hvert einasta skipti sem maður kemst í gegnum niðurskurðinn og er afar dýrmætt,“ sagði Ólafía í samtali við Fréttablaðið í gærmorgun. Þá var komið kvöld og mótinu nýlokið en hin suður-kóreska Ha Na Jang bar sigur úr býtum. Hún lék á samtals tíu höggum undir pari og var þremur höggum á undan næsta kylfingi.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er heiðarlegur keppnismaður.mynd/gsí
Heiðarleikinn kostaði víti

Ólafía Þórunn lék samtals á pari en var á tveimur höggum yfir pari á síðasta keppnisdegi. Mikill vindur gerði keppendum erfitt fyrir, sérstaklega síðustu tvo keppnisdagana. „Þá kom reynslan af íslenska rokinu sér vel,“ segir hún í léttum dúr.

Aðeins þrír kylfingar spiluðu betur en Ólafía á þriðja degi og þrátt fyrir að fjórði hringurinn hafi verið hennar versti á mótinu gerði hún vel með því að halda dampi við krefjandi aðstæður.

„Vindurinn var bæði sterkur og oft óútreiknanlegur. Hann breyttist oft fyrirvaralítið og þá er erfitt að reikna út höggin,“ segir Ólafía. Henni gekk vel að slá af teig en lenti í vandræðum með að slá inn á flatir. „Það var erfitt að reikna út þau högg og maður átti oft langt pútt eftir.“

Hún fékk aðeins einu sinni skramba á mótinu og hafði það ekkert með vindinn að gera. Ólafía fékk dæmt á sig víti á sjöundu holu, par 3, eftir að hafa lent í sandglompu.

Ólafía sagði að sandurinn hafi verið illa rakaður, sem væri óvenjulegt. „Það var smá ójafna sem ég tók ekki eftir og ég snerti sandinn í aftursveiflunni. Það má ekki,“ útskýrði hún. „En það sá þetta enginn nema ég. En ég gekk upp að dómaranum og sagði frá þessu. Ég spilaði því holuna á pari en heiðarleikinn kostaði mig tvö högg. En það var miklu betra að gera þetta svona enda er ég ekki þannig manneskja sem getur bara haldið áfram. Það hefði allt farið í rugl hjá mér.“

Hún náði að laga stöðuna með því að fá tvo fugla í röð. „Ég vissi að ég gerið það eina rétta í stöðunni,“ segir hún.

Vísir/Getty
Ofar en Lydia Ko

Til marks um árangur hennar má nefna að hún spilaði á jafn mörgum höggum og Lydia Ko, efsta kona heimslistans, á lokahringnum og endaði ofar en hún.

„Þetta er í fyrsta sinn sem ég spila á sama móti og hún og manni brá svolítið að sjá að hún hafi verið á sama skori og ég. En annars hefur öll reynslan á LPGA-mótum verið fremur venjuleg. Mér hefur liðið vel og ég hef skemmt mér mjög mikið,“ segir Ólafía.

Ólafía fær ekki að keppa á næstu tveimur mótum, sem bæði fara fram í Asíu. Nýliðar á mótaröðinni fá öllu jöfnu ekki sæti á þeim. Næsta mót hennar verður í Phoenix í Bandaríkjunum í næsta mánuði en í millitíðinni snýr hún heim til Íslands.

Hún sér þó ekki eftir ferðinni til Ástralíu. „Ég mun aldrei gleyma högginu á átjándu holu á öðrum hring,“ sagði hún en þá vippaði Ólafía fyrir fugli, sem tryggði henni áframhaldandi þátttöku á mótinu á hádramatískan hátt.


Tengdar fréttir

Heiðarleiki Ólafíu kostaði hana víti

Fékk víti á sjöundu holu á lokahringnum í Ástralíu nótt fyrir brot á reglum "sem enginn sá nema ég,“ sagði Ólafía Þórunn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×