Tíska og hönnun

Einstakar Fokk ofbeldi húfur

Stefán Árni Pálsson skrifar
myndir/saga sig
UN Women á Íslandi í samstarfi við Vodafone efnir til uppboðs á þremur Fokk ofbeldi húfum með tvisti.

Fokk ofbeldi húfan hefur selst eins og heitar lummur undanfarnar tvær vikur og nú er komið að lokahnykk átaksins. UN Women á Íslandi brá á það ráð að fá Ernu Einarsdóttur yfirhönnuð Geysis, Hildi Yeoman fatahönnuð og myndlistarkonuna Elínu Hansdóttur til að hanna sérstaka útgáfu af húfunni og gerði hver og ein sína útgáfu af sinni alkunnu snilld.

Öllum er velkomið að taka þátt í uppboði UN Women á Íslandi og Vodafone og sömuleiðis eru allir hjartanlega velkomnir á gleðina en ærið tilefni er til að fagna frábærum viðtökum almennings við Fokk ofbeldi átakinu sem  gengið hefur vonum framar.

Fjórir lukkunnar pamfílar geta einnig unnið Fokk ofbeldi pakka, myndatöku hjá Sögu Sig, Bluetooth hátalara og Vodafone Platinum 7 snjallsíma. Hægt er að skrá sig í happdrættið hér.

Uppboðinu stýrir enginn annar en Þorsteinn Guðmundsson. Þá mun Friðrik Dór einnig taka nokkur lög. Laufléttar veitingar verða í boði. Uppboðið fer fram í verslun Vodafone Kringlunni, fimmtudagskvöldið 23. febrúar kl.19.45.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×