Lífið

Fleet Foxes kemur fram í tvígang á Iceland Airwaves

Stefán Árni Pálsson skrifar
Drengirnir í sveitinni Fleet Foxes.
Drengirnir í sveitinni Fleet Foxes.
Iceland Airwaves tilkynnti í dag fleiri listamenn sem koma fram á hátíðinni í ár.  Meðal þeirra eru bandaríska svetin Fleet Foxes, Billy Bragg, JFDR, Mammút og Sturla Atlas.

Fleet Foxes munu verða með tvenna tónleika í Eldborgarsal Hörpu, þ. 3. og 4. nóvember nk. Kaupa þarf sérstakan miða á fyrri tónleikana en þeir síðari standa öllum miðahöfum Iceland Airwaves til boða á meðan húsrúm leyfir.

Miðahafar þurfa þó að nálgast sérstakan aðgöngumiða á tónleikana og hefst afhending þeirra miða í Hörpu á tónleikadaginn 4. nóvember kl. 14:00. Miðasala á tónleikana 3. nóvember hefst á tix.is og harpa.is föstudaginn 24. febrúar nk.

Hér að neðan er heildarlisti yfir þá listamenn sem tilkynntir voru í dag á Iceland Airwaves 2017.

Iceland Airwaves tónlistarhátíðin verður haldin í 19. skipti dagana 1. – 5. nóvember nk. Miðasala er hafin á tix.is.   

Listamenn tilkynntir í dag:

Fleet Foxes (US)

Billy Bragg (UK) 

Mammút Lido Pimienta (CF)

Childhood (UK)

Lonely Parade (CA)

JFDRHórmónarShame (UK)

KÁ-AKÁ

Tófa 

Hildur 

Alexander Jarl

Cyber

Sturla Atlas 

aYia

AKUREYRI

Eins og tilkynnt hefur verið mun hátíðin einnig vera haldin á Akureyri þar sem boðið verður upp á dagskrá í tvo daga og verða því enn fleiri möguleikar í boði fyrir hátíðargesti.  Eftirfarandi möguleikar eru í boði varðandi miðakaup á Iceland Airwaves 2017: 1) Almennur miði, gildir á alla viðburði hátíðarinnar, earlybird 17.900 kr, fullt verð 21.900 kr. 2) Akureyrarmiði, gildir á alla viðburði hátíðarinnar á Akureyri, 8.900 kr.    3) Akureyri + viðbót, gildir á alla viðburði hátíðarinnar á Akureyri og í Reykjavík dagana 4. og 5. nóvember, 14.900 kr. Af þeim listamönnum sem tilkynntir hafa verið og  koma einnig fram á Akureyri eru Ásgeir, Benjamin Clementine (UK), Emiliana Torrini and the Colorist (IS/BE), JFDR, Arab Strap (SCO), Mammút, KÁ-AKÁ, Emmsjé Gauti, GKR, Xylouris White (GR/AU; Hildur, Alexander Jarl, aYia, Sturla Atlas og Cyber. 

Lagið Mykonos er vinsælasta lag Fleet Foxes.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×