Glamour

Rauði dregillinn fyrir BRIT verðlaunin var skrautlegur

Ritstjórn skrifar
Rita Ora lét sig ekki vanta í gær.
Rita Ora lét sig ekki vanta í gær. Myndir/Getty
Það er ekki sjálfgefið að rauði dregillinn sé alltaf flottur. Sú varð svo sannarlega ekki raunin á BRIT tónlistarverðlaununum í London í gær. 

Stjörnurnar tóku flestar miklar áhættur en því miður tókst ekki nógu vel til hjá flestum. Þó voru sumir sem að komu vel út í fallegum flíkum. Við tókum saman allar helstu stjörnurnar frá rauða dreglinum í gær hér fyrir neðan. 

Sænska söngkonan Zara Larsson var flott í Dolce & Gabbana.
Brooklyn Beckham.
Natalia Vodianova hitti ekki alveg í mark með þessum samfesting.
Stúlknahljómsveitin Little Mix hefðu getað verið betur stíliseraðar.
Ellie Golding var flott á dreglinum í gær.
Rita Ora tekur áhættur á rauða dreglinum og tekst oftast vel til, eins og í gær.
Nicole Scherzinger tók áhættu sem skilaði sér ekki.





×