Viðskipti innlent

Netflix ekki keypt neitt af Myndformi

Haraldur Guðmundsson skrifar
Netflix samdi við Senu og Sam-félagið áður en efnisveitan opnaði hér í janúar í fyrra.  Fréttablaðið/EPA
Netflix samdi við Senu og Sam-félagið áður en efnisveitan opnaði hér í janúar í fyrra. Fréttablaðið/EPA Vísir/EPA
„Við höfum ekki selt þeim neitt en það hafa verið einhverjar þreifingar. Þeir vilja ekki borga það sem við viljum og þessar viðræður hafa því ekki gengið,“ segir Gunnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Myndforms, aðspurður hvort fyrirtæki hans hafi tekið upp að nýju viðræður við bandarísku efnisveituna Netflix.

Myndform var fyrst stóru íslensku kvikmyndafyrirtækjanna þrigga til að hefja viðræður við Netflix í ágúst 2014. Bandaríska fyrirtækið hafði þá boðað komu sína hingað til lands og opnaði efnisveitu sína hér í janúar í fyrra.

Viðræðurnar við Myndform höfðu þá siglt í strand og sagði Gunnar í samtali við DV að fyrirtækið ætti að öllum líkindum eftir að eiga í viðskiptum við Netflix á einhverjum tímapunkti.

Gunnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Myndforms.
„Það hefur ekki enn gerst en við erum að þjónusta íslenska aðila eins og Maraþon NOW og Vodafone Play,“ segir Gunnar. Myndform á sýningarrétt á kvikmyndum bandarísku framleiðslufyrirtækjanna Lionsgate, Universal og Metro-Goldwyn-Mayer og mikið af talsettu barnaefni.

Aftur á móti hefur fyrirtækið ekki alltaf samið um sýningarétt fyrir sjónvarp heldur einungis kvikmyndahúsarétt. Úrvalið sem Netflix býður viðskiptavinum sínum er háð samningum við myndréttarhafa í hverju landi fyrir sig eða erlend framleiðslufyrirtæki.

Samkvæmt upplýsingum Vísis hefur Sam-félagið, sem á og rekur Sambíóin og Samfilm, selt Netflix talsvert af efni. Jón Diðrik Jónsson, eigandi og framkvæmdastjóri Senu, segir núgildandi samning fyrirtækisins við Netflix fara að renna út.

„Við gerðum nokkurra ára samning við þá á sínum tíma sem er enn í gangi. Sá samningur fer að klárast og við höfum rætt við þá hvað taki við. Þetta er búið að vera fínt og við munum nú skoða framhaldið," segir Jón Diðrik. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×