Lífið

Alþingi aðstoðaði við tökur á Black Mirror

Birgir Olgeirsson skrifar
Tökur fóru fram við Ráðhús Reykjavíkur um liðna helgi.
Tökur fóru fram við Ráðhús Reykjavíkur um liðna helgi. Vísir/GVA
Tökur á þætti í fjórðu seríu Black Mirror fóru fram í miðbæ Reykjavíkur um liðna helgi en kvikmyndagerðarmennirnir leituðu til Alþingis eftir aðstoð við tökurnar.

Þegar taka átti upp senu við Ráðhús Reykjavíkur í Tjarnargötu vildu aðstandendur þáttarins hafa kveikt ljós í húsum nærri tökustað. Þá höfðu þeir einnig augastað á malarbílastæði sem er á móti skrifstofu Happdrætti Háskóla Íslands í Tjarnargötu til að geyma bíla og tökuvagna.

Til þess þurftu þeir að hafa samband við Alþingi sem á malarbílastæði og nokkur hús í nágrenni við Ráðhúsið en þar á meðal var farið fram á að kveikt yrði ljós í skrifstofu Pírata í Vonarstræti. Píratarnir fengu veður af því og settu því fána flokksins í einn glugga skrifstofunnar ef ske kynni að sá gluggi muni sjást í þættinum.

John Hillcoat er leikstjóri þáttarins sem er tekinn upp hér á landi.Vísir/EPA
Leikstjóri þáttarins sem tekinn er upp hér á landi er John Hillcoat sem á að baki myndirnar The RoadLawlessThe Proposition og Triple 9.

Black Mirror er breskur vísindaskáldskapur úr smiðju Charlie Brooker þar sem finna má mikla háðsádeilu á nútímasamfélag og áhrif nútímatækni á það. Hefur hver þáttur sjálfstæðan söguþráð sem gerist annað hvort í hliðstæðri veröld eða í nálægðri framtíð.

Á vef Tracking Board er fjallað um ráðningu John Hillcoat en hann er þar talinn eiga að leikstýra þætti sem er sagður bera heitið Crocodile.

Andrea Riseborough hefur verið orðuð við hlutverk í þættinum sem er tekinn upp hér á landi.Vísir/EPA
 Ekki hafa fengist fregnir af söguþræðinum aðrar en að tvær konur eiga að vera í aðalhlutverki að því er fram kemur á vef Tracking Board.

Þar er jafnframt leikkonan Andrea Riseborough orðuð við eitt af aðalhlutverkunum en hún á að baki hlutverk í myndunum BirdmanOblivion og Nocturnal Animals.

Fyrsti þátturinn af Black Mirror var frumsýndur á Channel 4 í Bretlandi í desember árið 2011 en Netflix tók hann upp á sína arma og var þriðja þáttaröðin frumsýnd þar í fyrra.

Þessi fjórða þáttaröð verður framleidd af Netflix og verður í heild sex þættir.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×