Viðskipti innlent

Lykilmaður hjá Icelandair seldi bréf fyrir 130 milljónir

Haraldur Guðmundsson og Hörður Ægisson skrifa
Icelandair flutti alls 3,7 milljónir farþega í millilandaflugi 2016 og fjölgaði þeim um 20% frá fyrra ári. Þrátt fyrir að bréf félagsins hafi lækkað mikið á síðasta ári þá var rekstrarniðurstaða Icelandair sú næstbesta í 80 ára sögu félagsins.
Icelandair flutti alls 3,7 milljónir farþega í millilandaflugi 2016 og fjölgaði þeim um 20% frá fyrra ári. Þrátt fyrir að bréf félagsins hafi lækkað mikið á síðasta ári þá var rekstrarniðurstaða Icelandair sú næstbesta í 80 ára sögu félagsins. Vísir/Vilhelm
Magnús Kr. Ingason, lykilstarfsmaður hjá Icelandair Group, seldi fimm milljónir hluta í flugfélaginu í byrjun september síðastliðnum. Markaðsvirði hlutabréfanna var á þeim tíma á bilinu 129 til 133 milljónir króna. Bréfin höfðu þá lækkað að virði um 30 prósent frá því apríl í fyrra en við lokun markaða í gær fallið um 40 prósent síðan Magnús seldi í september.

Samkvæmt upplýsingum frá Ice­landair Group seldi Magnús, sem er framkvæmdastjóri Fjárvakurs, dóttur­félags Icelandair Group, og einn af átta manna framkvæmdastjórateymi félagsins, bréfin dagana 5. til 7. september. Viðskiptin voru tilkynnt til regluvarðar Icelandair sem upplýsti Fjármálaeftirlitið (FME) um þau. Magnús er fruminnherji en ekki einn af æðstu stjórnendum fyrirtækisins og því voru viðskiptin ekki flögguð í Kauphöll Íslands. Ekki fengust upplýsingar hjá Icelandair Group um hvort æðstu stjórnendur félagsins hefðu óskað eftir skýringum á sölunni. Magnús segir í skriflegu svari til Fréttablaðsins að hann telji ekki við hæfi að ræða persónuleg fjármál sín við fjölmiðla.

Samkvæmt ársreikningi Iceland­air Group, sem fyrirtækið kynnti eftir lokun markaða á þriðjudag, áttu átta framkvæmdastjórar þess og fjármálastjórinn Bogi Nils Bogason alls 6,1 milljón hluta í flugfélaginu í árslok 2015. Ári síðar hafði talan lækkað niður í 1,1 milljón hluta. Samkvæmt svari fyrirtækisins er því ljóst að enginn annar framkvæmdastjóri seldi bréf á árinu.

Kauphöll Íslands barst aftur á móti tilkynning um sölu Katrínar Olgu Jóhannesdóttur, stjórnarmanns í Icelandair Group, á 400.000 hlutum í flugfélaginu. Viðskiptin áttu sér stað, líkt og áður hefur komið fram, 30. september eða rúmum þremur vikum eftir að Magnús seldi. Markaðsverðmæti bréfa Katrínar Olgu nam 9,6 milljónum króna og vöktu viðskiptin mikla athygli þar sem þau áttu sér stað á síðasta viðskiptadegi þriðja ársfjórðungs. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.

Uppfært kl. 11.15: Icelandair Group áréttar að Magnús er fruminnherji hjá fyrirtækinu. Hann sé hins vegar ekki einn af æðstu stjórnendum en það sé sá hópur sem tilkynnt sé um sérstaklega til Kauphallar Íslands, í samræmi við 127. grein laga um verðbréfaviðskipti. Því hafi verið tilkynnt um viðskiptin til Fjármálaeftirlitsins en ekki Kauphallar. Fréttin hefur verið leiðrétt í samræmi við þetta. 


Tengdar fréttir

Fjárfestar í Icelandair skildir eftir í myrkrinu

Icelandair hefur verið skellt niður á jörðina. Fjárfestar, sjóðstjórar og verðbréfamiðlarar, sem Markaðurinn hefur rætt við, eru á einu máli um að það hafi orðið "meiriháttar trúnaðarbrestur,“ eins og einn viðmælandi lýsir því, á milli stjórnenda Ice­landair og hluthafa fyrirtækisins.

Margir boltar á lofti og hlutabréfin lækka

Sérfræðingur á hlutabréfamarkaði segir ekki koma á óvart að fjárfestar stígi varlega til jarðar í kjölfar uppgjörsfundar Icelandair Group. Félagið íhugar að breyta fargjöldum á Saga Class og vöruframboði til að mæta samkeppni.

Gagnrýnir sölu á bréfum stjórnarmanns í Icelandair

Svanhildur segir í harðorðri grein að sala Katrínar Olgu Jóhannesdóttur á bréfum í félaginu skömmu áður en uppgjörstímabili lauk sé til marks um að hún láti eigin hagsmuni ganga fyrir hagsmunum fyrirtækisins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×