Körfubolti

Oakley ekki lengur velkominn í Madison Square Garden

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Oakley hefur verið mjög gagnrýninn á störf James Dolan, eiganda New York Knicks.
Oakley hefur verið mjög gagnrýninn á störf James Dolan, eiganda New York Knicks. vísir/getty
Charles Oakley, fyrrverandi leikmaður New York Knicks, er ekki lengur velkomin á heimavöll liðsins, Madison Square Garden.

Oakley var vísað úr húsi og handtekinn aðfaranótt fimmtudags eftir að hafa lent í útistöðum við öryggisverði á leik Knicks og Los Angeles Clippers.

Oakley er lítill aðdáandi James Dolan, eiganda Knicks, en átökin á fimmtudaginn hófust þegar Oakley gerði hróp að Dolan.

Dolan hefur nú greint frá því að Oakley megi ekki koma lengur í MSG um óákveðinn tíma. Dolan rak einnig yfirmann öryggisgæslu í MSG í kjölfar atviksins á fimmtudaginn.

Oakley, sem er 53 ára, lék við góðan orðstír með Knicks á árunum 1988-98. Á þeim tíma komst Knicks í úrslit NBA-deildarinnar 1994 þar sem liðið tapaði fyrir Houston Rockets.

NBA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×