Sport

Gunnar: Enginn á topp tíu var laus

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gunnar mætir Bandaríkjamanninum Alan Jouban í öðrum aðalbardaga kvöldsins. Aðeins rúmur mánuður er til stefni en Gunnar segir að þessi stutti fyrirvari eigi sér eðlilegar skýringar.

„Við vorum búnir að bíða mjög lengi,“ sagði Gunnar. „Við vildum fá bardaga gegn manni á topp tíu manni en það var enginn laus. Við tókum þessu bara enda langar manni að komast inn og berjast.“

Hann hrósaði Alan Joban sem er 35 ára og á að baki alls nítján bardaga, þar af fimmtán sigra.

Hann tapaði fyrir Rússanum Albert Tumenov í október 2015, sem Gunnar vann örugglega í Rotterdam í fyrra, en hefur síðan þá unnið þrjá bardaga í röð.

Sjá einnig: Bardagi Gunnars og Jouban staðfestur

„Hann er í grunninn Thai boxari með brúnt belti í jiu jitsu. Það þýður ekkert að líta framhjá svona manni þó svo að það sé skrýtið að fara á móti honum, enda tapaði hann fyrir Tumenov fyrir ekki löngu síðan,“ sagði Gunnar. „En hann er búinn að sýna hvað hann getur. Hann er reynslumikill og nokkuð verðugur.“

Gunnar segir að rætt hafi verið fjóra til fimm bardagamenn á sterkustu bardagamönnum UFC í veltivigt en allir hafi beðist undan bardaga við Gunnar, yfirleitt vegna meiðsla.

„Stundum eru menn meiddir eins og maður þekkir sjálfir en svo gæti verið að menn séu ekki tilbúnir, eða vilji frekar bíða og fá annan bardaga í staðinn.“

Gunnar, sem hefur ekki barist síðan í maí, vonast til að þessi bardagi verði sá fyrsti af nokkrum á þessu ári.

„Ég get allavega ekki barist sjaldnar en á síðasta ári, ekki nema að ég missi þennan bardaga. En ég ætla að reyna að ná 2-3 bardögum í ár, helst þremur.“

Viðtalið við Gunnar má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×