Heilsa

Sjáðu þáttinn í heild sinni: Vertu í réttri líkamsstöðu í símanum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þriðji þáttur Meistaramánuðar 2017 var á dagskrá Stöðvar 2 á dögunum en þátturinn er í umsjón Pálmars Ragnarssonar.

Í þættinum fengu áhorfendur að hlusta á markmið nokkurra Íslendinga og voru þau svo sannarlega fjölbreytt.

Rætt var við Gunnar Svanbergsson, sjúkraþjálfari, sem fór yfir líkamsstöðu fólks og hvað maður ætti að forðast á þeim vettvangi, t.d. þegar þú ert í símanum á öllum þeim samfélagsmiðlum sem í boði eru.

Einnig heyrði Pálmar í sérfæðingum þáttarins sem eru; Anna Steinsen, markþjálfi og eigandi KVAN, Hafrún Kristjánsdóttir sálfræðingur, Viðar Halldórsson, lektor í félagsfræði og Björn Berg Gunnarsson, fræðslustjóri Íslandsbanka.

Hér að ofan má sjá þáttinn og einnig má sjá myndir inni á Instagram sem koma undir kassamerkinu #meistaram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×