Lífið

Gestrisnin, Herjólfur og brennu-maltið er það besta við Þjóðhátíð í Eyjum

Guðný Hrönn skrifar
Friðrik Dór, Hildur og Gauti munu halda uppi stuðinu á Þjóðhátíð í Eyjum.
Friðrik Dór, Hildur og Gauti munu halda uppi stuðinu á Þjóðhátíð í Eyjum. Vísir/Anton Brink
Það eru margir sem bíða nú í ofvæni eftir að sletta út klaufunum á Þjóðhátíð í Eyjum í sumar og til að ýta undir spenninginn þá voru þrír af þeim mörgu listamönnum sem stíga á svið á hátíðinni tilkynntir í dag. Það eru þau Emmsjé Gauti, Hildur og Friðrik Dór Jónsson. Lífið fékk að yfirheyra þau þrjú.

Emmsjé Gauti

Hefur þú spilað áður á Þjóðhátíð?

„Ég hef spilað tvisvar á Þjóðhátíð og bæði skiptin eru mjög eftirminnileg. Það er klikkað að standa á sviðinu og spila tónlist fyrir mannfjöldann undir berum himni.“

Við hverju má fólk búast við þegar þú stígur á svið?

„HVAÐ SEGIÐI GOTT MA­FAKKAS!“

Hvað er það besta við þjóðhátíð að þínu mati?

„Það er auðvitað að lauma einni malt með sér í dalinn þegar brennan er að byrja og horfa svo glottandi á góðan vin og hvísla „hey, brennu-malt, hehe“. Malt var að öllum líkindum búið til fyrir þennan brandara því það er auðvitað moldarbragð af drykknum.“

Friðrik Dór

Hefur þú spilað áður á Þjóðhátíð?

„Ég hef spilað á Þjóðhátíð alls sex sinnum svo þetta verður sjöunda hátíðin sem ég kem fram á. Það er alltaf gaman að spila á Þjóðhátíð enda hefur hún verið fjölsóttasta og stærsta útihátíð landsins undanfarin ár.“

Ertu Þjóðhátíðaraðdáandi?

„Já, ætli það ekki. Ég hef alltaf skemmt mér mjög vel í Eyjum.“

Við hverju má fólk búast við þegar þú stígur á svið?

„Ég mun biðja um brjáluð fagnaðarlæti á viðeigandi stöðum auk þess að syngja mín helstu lög.“

Hvað er það besta við Þjóðhátíð að þínu mati?

„Gestrisni Eyjafólks, höfð- ingjar heim að sækja!“

Hildur

Hefur þú spilað áður á Þjóðhátíð?

„Nei, ég hef ekki spilað áður. Ég hef ekki einusinni farið á Þjóðhátíð! Þannig að þetta verður nýtt á alla vegu fyrir mér, ég er mjög forvitin!“

Ertu Þjóðhátíðaraðdáandi?

„Ég hef náttúrulega ekki mætt í dalinn en ég hef eytt einum sólarhring af ævi minni í Vestmannaeyjum, í fyrra. Það var voða næs og allir sem ég hitti voru fáránlega hressir svo að ég verð bara að vona að þetta verði þannig líka á Þjóðhátíð.“

Við hverju má fólk búast við þegar þú stígur á svið?

„Risastóru stuði og hamingju. Ég er strax búin að ákveða að taka eitt íslenskt cover-lag sem allir elska og þá ætla ég að fá dalinn til að syngja almennilega með. Eða allavega þá sem verða enn þá með rænu.“

Hvað er það besta við Þjóðhátíð að þínu mati?

„Herjólfur daginn eftir. Ekki spurning.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×