Innlent

Telja að áfengisfrumvarpið nái nú í gegn

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Flutningsmenn frumvarpsins eru bjartsýnir.
Flutningsmenn frumvarpsins eru bjartsýnir. Vísir/GVA
Þeir flutningsmenn nýs frumvarps, sem myndi meðal annars gefa sölu áfengis frjálsa, sem Fréttablaðið náði tali af telja líklegra nú en áður að frumvarpið nái í gegn. Sams konar frumvörp voru lögð fram á tveimur síðustu þingum.

Alls eru flutningsmenn frumvarpsins níu og koma þeir úr fjórum flokkum. Samanlagður þingstyrkur flokkanna er 42 þingmenn.

Fyrsti flutningsmaður frumvarpsins og þingmaður Sjálfstæðisflokks, Teitur Björn Einarsson, segist treysta því að málið fái málefnalega meðferð og að um það verði uppbyggileg umræða í þinginu sem og í nefndum og í umsögnum sem berast.

Á þeim grunni telur hann að líkur séu á því að málið fái brautargengi. Það eigi hins vegar eftir að koma í ljós.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður
„Fólk er farið að átta sig á því að þetta er ekki eins hættulegt mál og margir vilja meina,“ segir Vilhjálmur Árnason, einn flutningsmanna, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og flutningsmaður fyrri frumvarpa sama efnis.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari Sjálfstæðisflokks, segist bjartsýn á að málið komist í gegn. „Ég held það sé líklegra nú en áður. Til dæmis út af frjálslyndri ríkisstjórn.“

Þá segja Vilhjálmur og Teitur Björn báðir að helsti munurinn á þessu frumvarpi og fyrri frumvörpum felist í tveimur þáttum; gerð er frekari krafa um aðgreiningu áfengis inni í verslunum frá annarri matvöru og heimilað verði að auglýsa áfengi.

Teitur Björn segir að reglur muni gilda um áfengisauglýsingar. Auglýsendum beri að taka fram skaðleg áhrif óhóflegrar neyslu og skerpt verði á því að slíkar auglýsingar megi ekki höfða til barna.

Teitur Björn Einarsson, þingmaður
Áslaug Arna segir málið ekki forgangsmál. „Það er hins vegar áhugavert að heyra fólk tala um að þetta sé ekki mikilvægt mál á sama tíma og það talar um að málið eigi að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er smá andstæða í því,“ segir hún.

Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, hvatti til þess á Facebook í gær að málið færi í þjóðaratkvæðagreiðslu. „Setjum áfengisfrumvarpið í þjóðaratkvæðagreiðslu samhliða sveitarstjórnarkosningum og einbeitum okkur að því að ræða lausnir á þeirri staðreynd að fullt af fólki býr við enn þrengri kjör eftir breytingar á lögum um almannatryggingar,“ skrifaði Birgitta.

Vilhjálmur segir málið aldrei hafa verið forgangsatriði. „Það eru mörg minni mál en þetta sem fara í gegnum þingið sem og mörg stærri mál. En þetta er stórt prinsippmál. Mér finnst að menn megi ekki gera lítið úr því,“ segir Vilhjálmur.

Hann spyr á móti hvers vegna það sé forgangsatriði ríkisins að reka áfengisverslanir þegar það geti ekki rekið heilsugæslustöðvar á landsbyggðinni. „Við eigum að nota tíma og peninga ríkisins í annað en að reka áfengisverslanir.“

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu


Tengdar fréttir

Auglýsingar leyfðar í nýju áfengisfrumvarpi

Frumvarp um afnám einkasölu ÁTVR á léttvíni og bjór verður lagt fram. Teitur Björn Einarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins en þingmenn Pírata, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar munu einnig styðja málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×