Glamour

Lady Gaga senuþjófur hjá Tommy Hilfiger

Ritstjórn skrifar
Mynd/AFP
Söngkonan Lady Gaga er í kastljósinu þessa dagana eftir stórbrotna frammistöðu hennar í hálfleikssýningu í Superbowl um síðustu helgi. Það er því ekki að undra að hún stal senunni þegar fatahönnuðurinn Tommy Hilfiger sýndi vor-og sumarlínu sína í sólríku umhverfi á Venice Beach í gærkvöldi. 

Lady Gaga var mætt á fremsta bekk klædd í samfesting úr vetrarlínu Tommy Hilfiger og  stígvélum og netasokkkabuxum sem eru einmitt mjög mikið trend um þessar mundir. Förðun söngkonunnar vakti einnig athygli en mynd af því má sjá neðar í fréttinni. 

Meira um sýningu má lesa á Glamoursíðunni í Fréttablaðinu á morgun, föstudag. 

Ansi flott förðun hjá Lady Gaga.

Tengdar fréttir






×