Innlent

Bandarísku taekwondo samtökin komin í mál Meisam

Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar
Bandarísku taekwondo samtökin hafa sett sig í samband við Bandarísku Ólympíunefndina og stjórnvöld í Bandaríkjunum vegna máls Meisam Rafiei sem ekki mátti ferðast til Bandaríkjanna vegna tilskipunar Bandaríkjaforseta um ferðabann frá tilteknum ríkjum Mið-Austurlanda og Afríku. Íþróttafréttaveitan ESPN greinir frá þessu

Steve McNally, framkvæmdastjóri markaðs- og samskiptamála hjá Bandarísku samtökunum staðfestir að Meisam hafi ekki komist til landsins þrátt fyrir að vera skráður á opna Bandaríska meistaramótið í taekwondo. Hann vonast til að málið leysist þannig að Meisam geti keppt á mótinu.

Meisam var meinað að fara til Bandaríkjanna á sunnudag sökum þess að hann er fæddur í Íran. Meisam er íslenskur ríkisborgari og fékk ríkisborgararétt fyrir um fimm árum síðan. 

Þá segir bandaríska sendiráðið í skriflegu svari til RÚV að ákvörðuninni verði ekki breytt. Meisam fái ekki að ferðast til Bandaríkjanna jafnvel þótt hann eigi íslenskt vegabréf.

Sjá: „Íslenskum ríkisborgara meinað að fara tilBandaríkjanna.“

Þá hefur íslenska taekwondo sambandið sett sig í samband við taekwondosamband Evrópu til að aðhafast í málinu. 

Taekwondosamband Íslands, harmar þá ákvörðun Bandaríkjastjórnar að meina Meisam Rafiei, landsliðsmanni í taekwondo og fyrrum landsliðsþjálfara, inngöngu í Bandaríkin. Þetta segir í tilkynningu frá sambandinu.

Haukur Skúlason, formaður Taekwondo sambandsins, segir tilskipun Bandaríkjaforseta geta haft alvarlegar afleiðingfar fyrir fjölda atvinnumanna í íþróttum.

„Við höfum átt mjög gott samstarf við utanríkisráðuneytið og Bandaríska sendiráðið sem fóru strax í það að koma til botns í málið á sunnudag,“ segir Haukur. „Einnig sendi sambandið áskorun út til evrópska taekwondosambandsins og heimssambandsins til að láta til sín taka í þessu máli af því að þetta snertir marga keppendur út um allan heim,“ segir hann.

Aðspurður hvort að það hefði komið til umræðu að liðið dragi sig úr keppni til að mótmæla tilskipuninni segir Haukur að keppendurnir séu ekki úti á forsendum sambandsins því hefði það ekki vald til að boða keppendur heim í mótmælaskyni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×