Innlent

Lögreglan óskar eftir aðstoð ökumanna

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Enungis er verið að leita eftir myndefni frá umræddu tímabili sem kann að sýna rauða Kio Rio bifreið.
Enungis er verið að leita eftir myndefni frá umræddu tímabili sem kann að sýna rauða Kio Rio bifreið.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir því að ökumenn bifreiða, sem búa yfir myndavélabúnaði, yfirfari myndefni í þeirri von að það geti gagnast lögreglu við leit að Birnu Brjánsdóttur.

Óskað er eftir myndefni sem tekið var upp laugardagsmorguninn 14. janúar frá kl. 7 – 11.30. Jafnframt er tekið fram að einungis er verið að leita eftir myndefni frá umræddu tímabili sem kann að sýna rauðan smábíl af gerðinni Kia Rio.

Leitað er eftir myndefni frá höfuðborgarsvæðinu og utan þess, raunar frá stórum hluta suðvestanlands, þ.e. á Reykjanesi, Suðurlandi (að Selfossi) og Vesturlandi (upp í Borgarfjörð).

Í tilkynnningu frá lögreglu segir að vitað sé að margir ökumenn, ekki síst atvinnubílstjórar, búa yfir slíkum myndavélabúnaði og eru hinir sömu beðnir um að yfirfara myndefnið með framangreint í huga.

Þeir sem búa yfir slíkum myndavélabúnaði og vilja koma myndefni til lögreglu eru beðnir að athuga:

  • Að búið sé að fara yfir myndefnið og kanna hvort að þar sé bifreið sem getur átt við lýsinguna.
  • Að tímasetning á atviki komi fram
Upplýsingum má koma á framfæri í síma lögreglu 444 1000, í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eða í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is

Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn sem stýrir rannsókninni á hvarfi Birnu Brjánsdóttur, segir lögregluna telja að hún hafi farið upp í rauða Kia Rio-bifreið við Laugaveg 31 aðfaranótt laugardagsins 14. janúar klukkan 05:25. 

Þá sást seinast til Birnu og hefur ekkert spurst til hennar síðan en tveir grænlenskir menn, sem lögreglan grunar að tengist hvarfi Birnu, hafa verið úrskurðaðir í tveggja vikna gæsluvarðhald. Eru þeir grunaðir um manndráp.

 

Tilkynning lögreglunnar í heild sinni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu beinir þeim vinsamlegu tilmælum til ökumanna bifreiða, sem búa yfir myndavélabúnaði að þeir yfirfari myndefnið í þeirri von að það geti gagnast lögreglu við leit hennar að Birnu Brjánsdóttur. Hér er einvörðungu og aðeins átt við myndefni sem tekið var upp laugardagsmorguninn 14. janúar frá kl. 7 – 11.30.

Jafnframt er tekið fram að einungis er verið að leita eftir myndefni frá umræddu tímabili sem kann að sýna rauðan smábíl af gerðinni Kia Rio. Leitað er eftir myndefni frá höfuðborgarsvæðinu og utan þess, raunar frá stórum hluta suðvestanlands, þ.e. á Reykjanesi, Suðurlandi (að Selfossi) og Vesturlandi (upp í Borgarfjörð). Vitað er að margir ökumenn, ekki síst atvinnubílstjórar, búa yfir slíkum  myndavélabúnaði og eru hinir sömu beðnir um að yfirfara myndefnið með framangreint í huga.

Þeir sem búa yfir slíkum myndavélabúnaði og vilja koma myndefni til lögreglu eru beðnir að athuga:

Að búið sé að fara yfir myndefnið og kanna hvort að þar sé bifreið sem getur átt við lýsinguna.

Að tímasetning á atviki komi fram.

Það að fara yfir myndbönd er mjög tímafrekt og til að nýta mannafla lögreglu sem best biðjum við fólk að gæta að þessu.

Upplýsingum má koma á framfæri í síma lögreglu 444 1000, í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinueða í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×