Formúla 1

Williams: Leið illa yfir því að biðja Massa um að koma aftur

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Bottas fer til Mercedes og Felipe Massa hættir við að setjast í helgan stein til að hjálpa Williams liðinu.
Bottas fer til Mercedes og Felipe Massa hættir við að setjast í helgan stein til að hjálpa Williams liðinu. Vísir/Getty
Claire Williams, liðsstjóri Williams liðsins í Formúlu 1 segir að sér hafi liðið illa yfir að hringja í Felipe Massa og biðja hann um að hætta við að setjast í helgan stein.

Williams hringdi í Massa í desember skömmu eftir að hann hafði verið í höfuðstöðvum liðsins á jólahlaðborði. Hann var spenntur að koma aftur. Hann hætti víst aðallega vegna þess að hann vissi að það var ekki laust sæti hjá toppliði á næsta tímabili. Hann var ekkert kominn með nóg af Formúlu 1, að sögn Williams.

„Felipe [Massa] hafði tilkynnt um brotthvarf sitt, við vorum búin að halda fögnuð með aðdáendum og svo þurfti ég að hringja í hann, fyrrum ökumann okkar til að spyrja hvort hann vildi ekki hætta við að hætta,“ sagði Claire Williams í samtali við Sky Sports News.

„Ég hef aldrei heyrt neinn eins spenntan og ánægðan svo það var mikill léttir fyrir okkur. Við myndum aldrei setja ökumann í bílinn sem við hefðum ekki trú á. Eins og allir gátu séð í fyrra hefur hann ekki tapað ástríðunni,“ bætti hún við.

Williams viðurkennir að hún vissi af hópum fólks sem töldu liðið vera að breyta rangt. Margir voru á því að Massa ætti bara að fá að vera í friði og að ungur ökumaður ætti að fá tækifæri.

„Ég vissi ekki [fyrr en ég talaði við hann] að hann vildi ekki hætta. Ég er því sannfærð um að Felipe muni standa sig vel í ár.“

„Hann getur bara farið og notið þess að aka án þess að það sé pressa á honum. Stundum breytist fólk þegar pressunni er aflétt.“

Staðreyndin er sú að Williams þurfti á reynslumiklum ökumanni að halda við hlið nýliðans Lance Stroll. Liðinu vantaði einhvern sem hafði ekið bíl síðasta árs og vissi á hvaða braut liðið var. Pat Symonds fráfarandi tæknistjóri liðsins hafði áður talað um mikilvægi þess að halda reynslu innan liðsins til að geta haldið áfram á þeirri þróunarbraut sem liðið er á.


Tengdar fréttir

Pascal Wehrlein til Sauber

Varaökumaður Mercedes liðsins og keppnisökumaður Manor liðsins, Pascal Wehrlein hefur gengið til liðs við Sauber liðið. Ökumannsmarkaðurinn er að skýrast eftir brotthvarf heimsmeistarans Nico Rosberg.

Valtteri Bottas kynntur sem ökumaður Mercedes

Mercedes hefur staðfest að Valtteri Bottas mun aka Formúlu 1 bíl liðsins á komandi tímabili. Bottas verður þar með liðsfélagi þrefalda heimsmeistarans Lewis Hamilton.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×