Viðskipti innlent

Lilja Björk ráðin bankastjóri Landsbankans

Stefán Árni Pálsson skrifar
Lilja hefur störf í mars.
Lilja hefur störf í mars.
Lilja Björk Einarsdóttir, 43 ára verkfræðingur, hefur verið ráðin bankastjóri Landsbankans. Lilja mun hefja störf 15. mars. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbankanum. 

Lilja útskrifaðist sem véla- og iðnaðarverkfræðingur frá Háskóla Íslands árið 1998 og lauk meistaraprófi í fjármálaverkfræði frá Michigan-háskóla í Ann Arbor í Bandaríkjunum árið 2003.

Lilja er sjálfstætt starfandi ráðgjafi og stjórnarmaður í fyrirtækjum. Á árunum 2008 til 2016 stýrði Lilja starfsemi, eignaumsýslu og endurheimt eigna gamla Landsbanka Íslands, LBI ehf., í London. Á árunum 2005 til 2008 var hún sérfræðingur og síðar framkvæmdastjóri hjá Landsbanka Íslands hf. í London og bar m.a. ábyrgð á daglegum rekstri og uppbyggingu stoðdeilda. Áður vann Lilja hjá ráðgjafarfyrirtækinu Marsh & McLennan frá 2003 til 2005 og vann m.a. verkefni fyrir Ford-bílaframleiðandann, sem sérfræðingur í gerð áætlana og áhættulíkana fyrir vátryggingarsvið og fjárstýringu.

Helga Björk Eiríksdóttir, formaður bankaráðs, segir í tilkynningunni: „Bankaráð Landsbankans býður Lilju hjartanlega velkomna til starfa. Við teljum að reynsla og þekking hennar muni nýtast bankanum afar vel. Staða Landsbankans er traust og hann hefur á að skipa öflugu starfsfólki. Miklar áskoranir eru í rekstrarumhverfi fjármálafyrirtækja um þessar mundir og samkeppnin er hörð. Lilja er öflugur leiðtogi sem við treystum til að stýra Landsbankanum af festu og bæta enn frekar rekstur hans og afkomu. Stefna bankans er skýr. Landsbankinn er samherji viðskiptavina sinna, hann starfar í sátt við samfélagið og vill vera til fyrirmyndar.“

Steinþór Pálsson lét af störfum sem bankastjóri Landsbankans í lok nóvember eftir að skýrsla ríkisendurskoðunnar var birt þar sem eignasala bankans var harðlega gagnrýnd. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×