Bíó og sjónvarp

Kit Harrington sneri aftur til Íslands

Samúel Karl Ólason skrifar
Mynd náðist af leikaranum Kit Harrington á Íslandi á föstudagskvöldið.
Mynd náðist af leikaranum Kit Harrington á Íslandi á föstudagskvöldið. GETTY/KEARSTIN PETERSON
Leikarar úr Game of Thrones eru sagðir hafa snúið aftur til Íslands fyrir tökur sem fóru fram í Reynisfjöru um helgina. Mynd náðist af leikaranum Kit Harrington á Íslandi á föstudagskvöldið. Tökur hafa þegar farið fram á Svínafellsjökli og við Jökulsárlón en margt virðist benda til þess að Ísland muni leika stórt hlutverk í næstu þáttaröð þáttanna geysivinsælu.

Þó stóð til að tökunum myndi ljúka við enda síðustu viku.

Sjá einnig: Myndir frá ferðamönnum gefa vísbendingar um stórt hlutverk Íslands í Game of Thrones (Mögulegur Spoiler)

Harrington snúið aftur heim til sín í London í síðustu viku. Hann var hins vegar mættur aftur til Íslands á föstudaginn, samkvæmt Watchers on the Wall. Meðfylgjandi mynd var tekin hér í Reykjavík á föstudaginn. Konan sem tók hana segir Harrington hafa verið á sama hóteli og hún, en hann hafi farið af hótelinu eftir helgina.

Þá birti Winter Is Coming myndir af tökum í Dyrhólafjöru nú um helgina.



Fyrir neðan myndina verður fjallað um hvað tökurnar þýða mögulega. Þið vitið af því.


Eins og sjá má á myndinni virðist sem að tveir bátar hafi komið að landi og er það í samræmi við fregnir af því að mögulega kíkir Snow og félagar aftur norður fyrir Vegginn.

Vitað er að aðrir leikarar eins og Liam Cunningham (Davos Seaworth), Joe Dempsie (Gendry), Rory McCann (Hundurinn) og Kristofer Hivju (Tormund Giantsbane) voru hér á landi.

If Tormund had a car- this would be the one!

A photo posted by Kristofer Hivju (@khivju) on

Ísland hefur nokkrum sinnum áður verið notað til að tákna landið handan Veggjarins í Westeros. Þá voru myndir frá Íslandi notaðar í bakgrunna í sjöttu þáttaröð.

Hér fyrir neðan má sjá þegar fréttastofa Stöðvar 2 fór í heimsókn á tökustað Game of Thrones við rætur Vatnajökuls árið 2011. Rætt er við handritshöfundana Dan B. Weiss og David Benioff, Chris Newman meðframleiðanda, Snorra Þórisson, eiganda Pegasus og fleiri. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×