Erlent

Breivik heilsaði að nasistasið í réttarsal

atli ísleifsson skrifar
Breivik drap 77 manns árið 2011 í sprengingu í miðborg Óslóar og með því að skjóta alla þá sem á vegi hans urðu í Útey þar sem sumarbúðir ungliðadeildar Verkamannaflokksins fóru fram.
Breivik drap 77 manns árið 2011 í sprengingu í miðborg Óslóar og með því að skjóta alla þá sem á vegi hans urðu í Útey þar sem sumarbúðir ungliðadeildar Verkamannaflokksins fóru fram. Vísir/AFP
Norski hryðjuverkamaðurinn og fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik heilsaði að nasistasið við upphaf réttarhalda í máli hans gegn norska ríkinu í morgun.

Dómstóll dæmdi síðasta vor að norska ríkið hefði brotið gegn mannréttindum Breivik í fangelsi. Málsaðilar áfrýjuðu báðir dómnum og er málið nú tekið fyrir að nýju á hærra dómsstigi (lagmannsretten).

Dómarinn var fljótur að bregðast við nasistakveðju Breivik í morgun og sagði hana móðgun við dóminn. „Ég verð að biðja þig um að heilsa ekki aftur á þennan hátt,“ sagði dómarinn. Breivik reyndi þá að segja eitthvað, sem heyrðist illa.

„Við höfum ekki áhuga á að heyra hvað þú hefur að segja á þessari stundu,“ sagði dómarinn.

Breytingar á aðstæðum Breivik

Greint var frá því í síðasta mánuði að norsk fangelsismálayfirvöld hafi gert breytingar sem snúa að aðstæðum Breivik í fangelsinu í kjölfar dómsins sem féll síðasta vor.

Þær breytingar voru meðal annars gerðar að rimlar verði milli Breivik og lögfræðings hans þegar þeir ræða saman, í stað glerveggjar. Þá hefur hann nú aukna möguleika á að hreyfa sig og dvelja undir berum himni á fangelsislóðinni.

Breivik höfðaði málið þar sem hann taldi mannréttindi sín meðal annars brotin vegna þess að hann væri ítrekað látinn sæta líkamsleit, væri í einangrun í 23 af 24 tímum sólarhringsins og vakinn á nóttunni. Þá fengi hann að hafa takmörkuð samskipti við annað fólk.

Í dómnum sem féll síðasta vor segir að líkamsleitirnar og sú mikla einangrun sem Breivik hafi sætt séu brot á einu ákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu. Norska ríkið hélt því fram fyrir dómi fangelsisvist hans væri að fullu leyti í samræmi við lög og reglur. Nauðsynlegt væri að hann sætti mikilli öryggisgæslu þar sem hann væri sérstaklega hættulegur maður.

Breivik drap 77 manns árið 2011 í sprengingu í miðborg Óslóar og með því að skjóta alla þá sem á vegi hans urðu í Útey þar sem sumarbúðir ungliðadeildar Verkamannaflokksins fóru fram.

Hinn 37 ára Breivik var dæmdur í 21 árs fangelsi árið 2012 þó að ólíklegt þykir að hann muni nokkurn tímann verða sleppt.


Tengdar fréttir

Breytingar á aðstæðum Breivik í fangelsinu

Anders Behring Breivik hefur búið við mikla einangrun og komst dómstóll að þeirri niðurstöðu í vor að yfirvöld brytu að hluta á mannréttindum fangans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×