Innlent

Loga þykir stjórnarsáttmálinn nokkuð rýr í roðinu

Anton Egilsson skrifar
Logi Már Einarsson segir nýja ríkisstjórn eiga mjög flókið og erfitt störf fyrir höndum.
Logi Már Einarsson segir nýja ríkisstjórn eiga mjög flókið og erfitt störf fyrir höndum. Vísir
Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, telur nýsamþykktan stjórnarsáttmála nokkuð rýran í roðinu. Hann segir fögur fyrirheit að finna í sáttmálanum sem hann er svartsýnn á að verði efnd.

„Hann er frekar almennt orðaður og nokkuð rýr í roðinu“ sagði Logi í samtali við Vísi aðspurður um álit sitt á nýsamþykktum stjórnarsáttmáli ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar  við honum.

Hann segir þó að í honum sé að finna fögur fyrirheit en telur að erfitt sé að efna þau nema að ráðist verði í tekjuöflun. Á að slíkt verði raunin segist hann þó svartsýnn.  

„Auðlinda- og skattastefna Sjálfstæðisflokksins hefur orðið ofan á þannig að menn munu áfram byggja á því að hygla þeim efnameiri og láta almenning sitja hjá.“

Erfitt starf fyrir höndum

Samkvæmt Loga felast einnig ýmsar hættur í sáttmálanum.

„Það eru ýmsar hættur í sáttmálanum líka. Ég tók eftir því í menntamálakaflanum að þar er verið að tala um fjölbreytileika í rekstrarformi. Ef þar er verið að tala um einkavæðingu líst mér afar illa á það.“

Spurður að því hvernig hann telji að nýrri ríkisstjórn muni vegna segir hann ljóst að hún eigi erfitt verkefni framundan.

„Þetta er tæpur meirihluti og hann mun örugglega eiga mjög flókið og erfitt starf fyrir höndum.“


Tengdar fréttir

Svona lítur stjórnarsáttmálinn út

Formenn Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar undirrituðu sáttmála um ríkisstjórnarsamstarf í Gerðarsafni í Kópavogi í dag klukkan 14:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×