Innlent

Miðill kveðst hafa séð Tinnu nálægt álverinu

Benedikt Bóas Hinriksson skrifar
Líf þeirra Ágústs og Andreu snýst um að finna hundinn sem þeim þykir svo vænt um.
Líf þeirra Ágústs og Andreu snýst um að finna hundinn sem þeim þykir svo vænt um. Mynd/Úr einkasafni
Formlegri leit að hundinum Tinnu hefur nú verið hætt en áfram halda þó eigendur hennar, Andrea Björnsdóttir og Ágúst Ævar Guðbjörnsson, að leita.

Andrea leitaði langt fram á mánudagsnóttina og var komin af stað í birtingu í gær. Þegar Fréttablaðið náði tali af henni var hún nálægt Vogum en hún lagði af stað við álverið í Straumsvík. 

„Ég var eiginlega búin að missa vonina á mánudag en fékk svo símtal frá dóttur miðils sem hafði séð Tinnu margoft, að hún væri á lífi og héldi til á þessu svæði. Dóttir hennar og barnabörnin komu með mér að leita á mánudag,“ segir Andrea. Hún bætir því við að hún sé mjög skeptísk á miðla almennt en ákvað að taka þessari vísbendingu fagnandi.

Andrea biður fólk að leita í skúrum og görðum, og að hringja í síma 846-6613 telji það sig hafa séð Tinnu.
„Ég hef farið til þessa miðils einu sinni og hún sá ákveðið sem enginn hefði geta vitað. Þarna fékk ég smá von en mér finnst þetta vera síðasti dagurinn því það er spáð svo miklu frosti. Skipulagðri leit er hætt og fólkið sem sá um hana á svo miklar þakkir skildar því ég er alltaf úti að leita. Það er liðinn langur tími síðan hún týndist en ef það koma upp nýjar vísbendingar þá er fólk tilbúið að koma og hjálpa, sem er ótrúlega fallegt.“

Andrea segir að stuðningurinn, sem hún hefur notið, sé ómetanlegur og nefnir sem dæmi að kona sem hafði ofnæmi fyrir hundum hefði farið að leita með börnunum sínum.

„Fólk er sumt að leita langt fram á nótt og alla daga. Það er ótrúlegt. Þó að ég sé að verða úrkula vonar þá rígheld ég í vonina. Ég efast um að ég geti hreinlega hætt að leita og ég hef ekki enn mætt í vinnuna. Ágúst er farinn að vinna aftur en tíminn einfaldlega stoppar. Það er bara eitt sem kemur til greina hjá mér og það er að finna Tinnu. Þegar það gerist má heimurinn fara að snúast á ný.“ 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu


Tengdar fréttir

Eigendur Tinnu ekki tekið upp úr töskunum

Umfangsmikil leit hefur staðið yfir frá Reykjanesi að Hafnarfirði að hundinum Tinnu. Eigendur hennar lofa 300 þúsund króna fundarlaunum. Mikill fjöldi fólks hefur leitað. Eigendurnir hafa ekki mætt til vinnu frá því Tinna týndist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×