Handbolti

Arnór: Spila fyrir stoltið og fólkið heima

Arnar Björnsson skrifar
Reynsluboltinn Arnór Atlason er klár í leikinn gegn Spánverjum á morgun en hann var að glíma við meiðsli í aðdraganda mótsins.

„Ég er klár í slaginn og það er gaman að vera kominn til Metz,“ segir Arnór sem hefur verið með á ellefu stórmótum með íslenska handboltalandsliðinu.  

Arnór segist ánægður með æfingamótið í Danmörku en leikurinn gegn heimamönnum hafi verið erfiður.

„Það var brekka frá fyrstu mínútu en Danir eru með eitt besta handboltalið í heimi. Við þurfum að sýna miklu betri leiki en við gerðum gegn þeim. Þetta var ákveðinn skellur en við tökum það ekki alltof mikið inná okkur og gerum okkur klára fyrir Spánverjaleikinn.“

Spánverjar og Slóvenar eru sterkustu liðin í riðli Íslands að flestra mati.

Sjá einnig: Aron: Þetta er ógeðslega leiðinlegt

„Fyrirfram má búast við því að Spánverjar og Slóvenar séu sterkastir í riðlinum en maður veit ekki hvað kemur frá Makedónunum og Túnisunum. Við ættum að vinna Angóla,“ segir Arnór sem  er búinn að vera lengi með landsliðinu og upplifa bæði sigra og ósigra.  Hvernig er andrúmsloftið í liðinu núna?

„Mér finnst það vera ferskt og við erum búnir að vera léttir. Æfingarnar hafa gengið vel og gott að fá þetta mót í Danmörku. Við erum búnir að æfa vel og mikið og erum eins klárir og við verðum, sama hverjir verða þeir 16 menn sem spila þennan leik.“

Arnór segir það alltaf gaman að æfa og spila með landsliðinu; „Annars væri maður ekki í þessu og þegar maður kemur á staðinn þá kemur fiðringurinn alltaf.“  

Hver er munurinn á að spila með sínu félagsliði og landsliðinu?

„Maður er alltaf fullur af stolti í hvert einasta sinn sem maður spilar í landsliðstreyjunni, það gefur manni mikið. Hérna spilar maður bara fyrir stoltið og fólkið heima. Við erum tilbúnir að leggja mikið á okkur til að standa okkur vel.“

Ekki missa af neinu sem gerist á HM í Frakklandi. Vísir er með öflugt fréttateymi á mótinu sem færir ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).


Tengdar fréttir

Góð fjárfesting til framtíðar

Strákarnir okkar hefja leik á HM eftir tvo daga. Þrír ungir strákar fengu mikilvægar mínútur á æfingamótinu í Danmörku og stóðu sig vel. Einar Andri Einarsson, þjálfari Aftureldingar, tekur stöðuna fyrir Fréttablaðið.

Aron: Ég er í kappi við tímann

Aron Pálmarsson var svona mátulega brattur eftir æfingu íslenska liðsins í Metz í kvöld. Hann hefur verið stórt spurningamerki fyrir HM og er það enn.

Þetta er ógeðslega leiðinlegt

Aron Pálmarsson kom með íslenska landsliðinu til Metz. Það er ekki enn ljóst hvort hann spilar með landsliðinu á HM. Hann fékk sprautu fyrir um viku sem hann vonast til að hjálpi sér að geta spilað á mótinu.

Geir: Vignir spilar ekki gegn Spánverjum

"90 prósent af 18 manna hópnum er í fínu standi,“ sagði Geir Sveinsson landsliðsþjálfari eftir æfingu karlalandsliðsins í Metz í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×