Sport

Mayweather býður Conor tæpa tvo milljarða fyrir að mæta sér í hringnum

Þetta yrði rosalegt!
Þetta yrði rosalegt! vísir
Floyd Mayweather Jr., einn besti hnefaleikakappi sögunnar, hefur boðið írsku MMA-ofurstjörnunni og Íslandsvininum Conor McGregor að mæta sér í hnefaleikahringnum.

Þessu sagði Mayweather sjálfur frá í viðtali í þætti á íþróttasjónvarpsstöðinni ESPN í gær. Hann sagði að hnefaleikabardagi við írska vélbyssukjaftinn væri það eina sem gæti lokkað hann til að taka fram hanskana aftur en Mayweather hætti fyrir tveimur árum ósigraður eftir 49 bardaga.

Sjá einnig:Conor ögrar Maywaether: Mun brjóta á honum andlitið

„Ég er viðskiptamaður og þetta er eitthvað sem mun ganga upp,“ sagði Mayweather sem er búinn að bjóða Conor fimmtán milljónir dollara eða tæplega tvo milljarða íslenskra króna fyrir að berjast við sig.

Conor hefur áður sagt að hann vilji fá 100 milljónir dollara fyrir að berjast við hnefaleikagoðsögnina en honum bjóðast þessar fimmtán bara fyrir það eitt að mæta til leiks.

„Við erum tilbúnir til að borga honum 15 milljónir dollara og svo getum við talað um hvernig við skiptum aðgangseyrinum og sjónvarpstekjunum. Þeir vita alveg hver talan mín er. Hún er alltaf 100 milljónir dollara. Það er mín tala,“ sagði Mayweather sem er alveg með munninn fyrir neðan nefið eins og Írinn.

Conor veit alveg af tekjumöguleikum í kringum þennan bardaga og nældi sér því í hnefaleikaleyfi undir lok síðasta árs. Það gæti því verið styttra í þennan ofurbardaga en margir telja.

Írinn er þó samningsbundinn UFC og þyrfti það samband að fá að taka þátt í herferðinni fyrir bardagann ef af verður og væntanlega að fá sneið af kökunni.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×