Formúla 1

McLaren ætlar sér stóra hluti 2017

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Fernando Alonso í McLaren bíl síðasta árs.
Fernando Alonso í McLaren bíl síðasta árs. Vísir/Getty
Jonathan Neale, einn stjórnanda McLaren liðsins í Formúlu 1 segir það vonbrigði fyrir liðið ef það nær ekki að komast ofar en í fjórða sæti í keppni bílasmiða á árinu.

McLaren hefur ekki átt góðu gengi að fagna undanfarin ár. Liðið endaði í níunda sæti í keppni bílasmiða árið 2015, sem var fyrsta árið í brösóttri endurkomu Honda sem vélaframleiðanda í Formúlu 1.

Árið 2016 var betra fyrir McLaren en þá hafnaði liðið í sjötta sæti í keppni bílasmiða, 13 stigum á undan Toro Rosso í sjöunda sæti og 62 stigum á eftir Williams í fimmta sæti.

Neale telur að McLaren geti bætt stöðu sína enn meira á komandi tímabili. Hann segir að ökumenn liðsins eigi eftir að spila stóran þátt í því, Fernando Alonso og Stoffel Vandoorne munu aka fyrir liðið í ár. Þar að auki horfir Neale til mikilla tæknibreytinga sem munu eiga sér stað.

„Maður verður að miða hátt, en eins og staðan er núna yrði ég vonsvikinn með fjórða sæti. Við viljum vinna og við viljum vinna fljótlega,“ sagði Neale í samtali við Autosport.

„Við erum keppnislið, við erum með ökumenn sem geta unnið keppnir og við erum með undirvagn og vél sem geta tekið framförum og við ásamt Honda vinnum að því.“

„Við sjáum líka tækifæri í þeirri óvissu sem breiðari dekk og breiðari vængir skapa. Við getum grætt þar gagnvart öðrum liðum.“

Enginn veit fyrir víst hver staða Formúlu 1 liðanna verður innbyrgðis fyrr en kemur að keppninni í Ástralíu þann 26. mars. Þangað til munu liðin taka þátt í æfingum en beita ýmsum brögðum til að fela eigið ágæti eða veikleika eigin bíls.


Tengdar fréttir

Alonso: Ég vil verða heimsmeistari með McLaren-Honda

Fernando Alonso ökumaður McLaren liðsins sagði starfsfólki liðsins að hann væri ekki á förum frá liðinu. Þrátt fyrir orðróm um að hann væri líklegur til að fylla sæti Nico Rosberg hjá Mercedes.

Örlög Manor ráðast á næstu átta dögum

Manor liðið í Formúlu 1 hefur átta daga til að finna fjárfesta til að bjarga liðinu. Skiptastjóri hefur tekið við rekstrarfélagi Manor liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×