Innlent

Til rannsóknar hvort skónum hafi verið komið fyrir

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Atburðarás gærdagsins.
Atburðarás gærdagsins. vísir/Loftmyndir ehf/Garðar Kjartans
Skórnir sem fundust við Hafnarfjarðarhöfn í gærkvöldi eru í sömu skóstærð og Birna Brjánsdóttir, stúlkan sem leitað er að, notar. Þeir eru jafnframt af sömu tegund og í sama lit og skórnir sem hún var í þegar síðast sást til hennar, en þó er ekki búið að staðfesta að um hennar skó sé að ræða.

Rannsókn lögreglu beinist fyrst og fremst að skónum, enda liggja fáar aðrar vísbendingar fyrir á þessum tímapunkti. Málið er skoðað frá öllum hliðum og nú er meðal annars reynt að finna út úr því hvort skónum hafi mögulega verið komið fyrir við höfnina, að sögn Gríms Grímssonar, yfirlögreglumanns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

„Það er hvort tveggja til rannsóknar, hvort viðkomandi hafi farið úr skónum þarna, ef þetta eru skórnir hennar Birnu, eða hvort þeim hafi verið komið fyrir þarna. En engu að síður er þungamiðjan á þessu svæði núna. Þetta er staðurinn sem við erum að miða við og það verður farið um allt þetta svæði í leitinni, það liggur alveg fyrir,“ segir Grímur í samtali við Vísi.

Björgunarsveitir leita Birnu nú við Hafnarfjarðarhöfn.vísir/eyþór
Vonuðust til að einhverjir gæfu sig fram með birtingu myndbandsins

Skóparið, sem er af tegundinni Dr. Martens, fannst skammt frá birgðastöð Atlantsolíu við Óseyrabraut, sem er ekki á hinu skilgreinda hafnarsvæði. Að sögn Gríms er nú unnið að því að nálgast myndbandsupptökur úr eftirlitvélum hjá Atlantsolíu, sem og hjá nærliggjandi fyrirtækjum.

Aðspurður segir Grímur engan hafa verið yfirheyrðan í tengslum við málið, en að bundnar hafi verið vonir við að einhverjir gætu gefið upplýsingar um ferðir Birnu með birtingu myndbands af henni í gær. Enginn hafi gefið sig fram en að þó hafi fjöldi ábendinga borist.  

„Einn tilgangur með því að birta myndbandið í gær var að fólkið sem sæi sjálft sig á upptökunni, án þess að aðrir þekktu það, hefðu samband við okkur þannig að við gætum fengið upplýsingar hjá þeim. En við vonumst til þess að það komi í dag.“  

Í forgangi að komast inn á Tinder-aðganginn

Ökumaður rauðrar Kia Rio bifreiðar hefur heldur ekki gefið sig fram og segir Grímur lögregluna enn reyna að hafa uppi á þeim aðila. Verið sé að vinna úr gögnum frá bílaleigum þessa stundina.

Þá segir hann að unnið sé að því að komast inn á samfélagsmiðla Birnu. Lögreglunni hefur þegar tekist að komast inn á Facebook aðgang hennar, en síðustu samskipti sem hún átti í gegnum Facebook voru á fimmtudag. Nú sé reynt að komast inn á stefnumótaforritið Tinder.

„Við erum með það í forgangi að reyna að komast inn á það svæði [Tinder],“ segir hann. Forritið er hægt að tengja við Facebook, en að sögn Gríms er það ekki tengt Facebook í tilfelli Birnu. Því þurfi að leita annarra leiða við að komast inn á það.

Skipulögð leit að Birnu er nýhafin. Haldið verður áfram að leita við Hafnarfjarðarhöfn og hafa allir viðbragðsaðilar verið kallaðir út; björgunarsveitir, lögregla og Landhelgisgæslan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×