Innlent

Fyrsta barn ársins 1980 eignaðist fyrsta barn ársins 2017

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Katrín Guðjónsdóttir og Egidijus Jankauskas eignuðust fyrsta barn ársins 2017. Um dreng er að ræða en hann kom í heiminn þrjár mínútur yfir klukkan tólf á miðnætti á fæðingardeildinni á Selfossi.

Ljóst er að fæðing drengsins er enn merkilegri fyrir þær sakir að móðir hans, Katrín var sjálf fyrsta barn ársins árið 1980 og er því um sannkallaða afmælisgjöf að ræða.

Magnús Hlynur Hreiðarsson hitti nýbökuðu foreldrana og drenginn en viðtalið birtist í kvöldfréttum Stöðvar 2. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×