Sport

Conor ætlar að verða besti knapi í heimi | Myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Leikararnir Conor McGregor og Jon Lovitz. Hver sá það ekki fyrir?
Leikararnir Conor McGregor og Jon Lovitz. Hver sá það ekki fyrir?
Írinn Conor McGregor notar fríið sitt frá UFC til þess að reyna fyrir sér í leiklistinni og í gær mátti sjá frumraun hans á því sviði þar sem hann leikur með Jon Lovitz.

Þeir eru í aðalhlutverkum í litlum stiklum fyrir Pegasus World Cup Invitational. Þar eru hestar í aðalhlutverkum en ekki bardagamenn og stórir peningar í boði. Þess vegna er hóað í peningamanninn Conor McGregor.





Conor leikur sjálfan sig í stiklunum og er orðinn knapi. Það sem meira er þá ætlar hann að verða besti knapinn „pund fyrir pund“.

Conor stendur sig ágætlega í stiklunni þar sem hann spyr meðal annars hversu erfitt það geti eiginlega verið að keppa á hestum. Hann sé bestur í öllu sem hann tekur sér fyrir hendur.

Von er á fleiri stiklum á næstu dögum.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×