Nýársspá Siggu Kling – Krabbinn: Það verður mjög lítið af drama í kringum þig 6. janúar 2017 09:00
Elsku spennandi Krabbinn minn. Þetta ár lítur út hjá þér eins og Rammagerðin lítur út á jólunum. Þú ert að fara inn í litríkasta ár í langan tíma. Þetta verður líka ár þar sem ýmsar torfærur verða á vegi þínum en það mun bara auka þér kraft og þú munt setja í 5 gírinn og komast yfir það sem þú þarft. Fyrri partinn af árinu ertu í alls kyns uppbyggingu. Spekúlerar í svo mörgu, lífinu, dauðanum og hamingjunni og öllu mögulegu. Þú finnur út á þessu tímabili hvað hentar þér best til þess að hafa þann kraft sem þetta ár mun svo sannarlega sýna þér. Lífsgleði er það sem einkennir þetta ár og er það ekki í raun og veru það eina sem við viljum? Þú ert, elskan mín, tilfinningaríkasta merkið en það verður mjög lítið af drama í kringum þig og miklu meira af spennu sem byggist á jákvæðni og krafti til að sjá hlutina í réttu ljósi, þú átt eftir að sýna öðru fólki mikla sanngirni og það mun svo sannarlega koma þér áfram í lífinu. Það er kannski skrýtið að segja að sumarið hjá þér verði tengt svo miklum gjöfum sem þú færð frá almættinu og ræður hvað þú gerir við, því yfirleitt er sumartíminn ekki að gera neitt sérstakt fyrir mann. Þá eru flestir í fríi og ekki margt nýtt að byrja. Þegar líða tekur á þetta ár hefur þú landað svo mörgu, t.d ef þú hefur áhuga á húsnæðiskaupum, þá verður það þér mjög létt, sérstaklega síðustu mánuðina eða jafnvel í upphafi árs 2018. Fyrirtæki sem eru í þinni eigu, því þú ert að sjálfsögðu fyrirtæki, eflist og gefur þér góða fjárhagslega útkomu. Ef þú hefur engan áhuga á því og langar bara að dvelja í meðalmennskunni þá er þetta alveg mjög gott ár, en þér finnst eins og þig vanti eitthvað. Þú skalt leggja fyrir þig nokkrar spurningar eins og: Er ég að gera það sem ég vil? Er ég hamingjusamur? Finnst mér lífið spennandi? Ef það hvarflar að þér að svarið við þessum spurningum sé nei, þá er kominn tími til að taka áhættu. Þetta ár hefur tákn eilífðarinnar sem lítur út eins og átta á hlið og það eina sem þú þarft að gera er að tengja þig við fólk. Þora að lifa, því að lífið er að bjóða þér í skemmtiferð sem er líka dálítill hasar og heilmikil rómantík og þessi kraftur mun aukast frá mánuði til mánaðar fram á mitt næsta ár. Þó að þú fáir leiða á manneskjum í kringum þig og nennir ekki að hanga með öllum, þá verður það samt frekar auðvelt verk að finna þér leið út úr svoleiðis tengingum og koma á nýjum og betri samböndum á þessu ári. Knús og klapp, Sigga KlingFrægir Krabbar: Bryndís Schram, Sigga Lorange Ostabúðarskvísa, Auddi Blö, sem við elskum öll, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og dúlla, Ólafur Stefánsson, handboltakappi og heimspekingur, Edda Sif, Sindri Sindrason, Ásdís Halla Bragadóttir, Hjörvar Hafliðason og Lars Lagerbäck landsliðsþjálfari, Davíð hinn góði skóari í Hafnafirði, Stefán Árni Pálsson fréttamaður, Th. forseti Íslands, Bento veitingakóngur, Friðbjörn Europartakóngur, Yesmine Olsen, höfundur og framleiðandi, George Michael, Kristófer Helgason, dagskrágerðamaður.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið „Með því að vera með honum varð ég meira ég sjálf“ Lífið Nígeríusvindlarinn reyndist vera bróðir hans Lífið Arkitekt dýrasta húss Íslandssögunnar selur í Fossvogi Lífið Fréttatía vikunnar: Frambjóðendur, eldgos og bjór Lífið „Það má segja að þetta sé í raun sorg og uppgjör“ Tónlist Vítalía og Arnar Grant í kossaflensi Lífið „Æskuheimilið hans er bara rústir“ Lífið Féllust í faðma á tilfinningaríkri stundu Lífið Valgerður selur íbúðina í Vesturbænum Lífið Myndavél frá afa algjör fjársjóður Tíska og hönnun Fleiri fréttir „Með því að vera með honum varð ég meira ég sjálf“ Fréttatía vikunnar: Frambjóðendur, eldgos og bjór Nígeríusvindlarinn reyndist vera bróðir hans Arkitekt dýrasta húss Íslandssögunnar selur í Fossvogi Féllust í faðma á tilfinningaríkri stundu Valgerður selur íbúðina í Vesturbænum Mesta hættan í unglingaherberginu Bauð öllum bæjarbúum í matarboð Talin ólíklegust til að komast áfram „Æskuheimilið hans er bara rústir“ Gult og glæsilegt einbýlishús Sölva til sölu „Ekki lengur þræll þess að finnast ég ekki nóg“ Magnea fór upp á fjall á tryllitæki Margrét Ýr og Reynir nýtt par „Vildi greinilega ekki að einhver úr fjölskyldunni kæmi að honum“ Samantha Davis er látin Höfundur Kaupalkabókanna með krabbamein í heila Eva Ruza og Gunna Dís inn fyrir Gísla og Felix Nýbökuðu hjónin kíktu í kaffi til Guðna Bergur og Inga Lóa selja eitt glæsilegasta hús Garðabæjar Sofia Vergara með fjallmyndarlegum lækni Gunna Dís kynnir Eurovision í stað Gísla Marteins Vítalía og Arnar Grant í kossaflensi Fengu sér miðnætursnarl í Skotlandi Ási selur íbúðina eftir sambandsslitin Laufey í Vogue ásamt Rihönnu Gengur hundrað kílómetra með hundrað kílóa sleða Bassi Maraj og Patrekur í svínslegu stuði Með milljónir fylgjenda og lætur drauminn rætast í London Missti allar tærnar þrjátíu árum eftir að konan skar undan honum Sjá meira