Nýársspá Siggu Kling – Ljónið: Ofkeyrðu þig nú ekki, taktu einn dag í einu, til þess eru þeir 6. janúar 2017 09:00
Elsku fallega Ljónið mitt. Þetta er ár hreinsunar, nákvæmlega eins og maður setur bara skítug föt í hreinsun, þau koma eins og ný til baka. Þannig er þema þessa árs hjá þér, hjartað mitt. Þú færð svo sterka innri sýn á hvað er að hindra þig og hvernig þú getur leyst það. Þetta er ár þar sem mun verða mikill agi hjá þér í svo mörgu. Þú finnur styrk þinn aukast eftir því sem líður á árið. Fyrri parturinn af þessu ári verður töluvert hraðfleygur. Það er ekki endilega það sem hentar þér best, þó að þú vinnir mjög vel undir stressi eða álagi. Þú átt eftir að tímasetja hlutina betur og vera með það á hreinu að eina manneskjan sem þú getur stólað á, ert þú. Þegar þú sérð þetta eykst þér krafturinn. Heilmikið brask og skemmtilegheit verða núna á næstu mánuðum en ofkeyrðu þig nú ekki, taktu einn dag í einu, til þess eru þeir. Það er annaðhvort fólk núna í kringum þig eða mun koma inn í líf þitt áður en sumarið kemur sem mun bjóða þér gull og græna skóga. Sum þessara tilboða eru gerð af heilindum og miklu meira en orðin tóm. Svo leynast inn á milli einhvers konar tilboð sem eru marklaus með öllu. Þar af leiðandi þarftu að sýna mikinn styrk og ákveðni um hvað þú ætlar að velja og hverju þú ætlar að hafna. Leitaðu ráða í kringum þig, það er stundum æðislega gott. Þegar líða tekur á árið þá verða jafnvægi, ró, friður og öryggi sterkustu orðin sem ég get sent þér. Þú verður búin að vinna mikið í sjálfu þér og ekkert er fegurra en Ljón sem er ánægt með sjálft sig. Það verða dálitlir öfgar fyrstu mánuðina en það er bara allt í lagi því að það koma skemmtilegar sögur út úr því. Þú ert búið að loka hurðinni að því gamla og um hálsinn á þér hangir lykillinn að lífinu, svo ekkert úr fortíðinni getur skemmt fyrir þér á þessu ári Svo hafðu ekki áhyggjur af því. Þetta er mjög mikilvægt ár og það er eins og þú verðir helmingi vitrari eftir að árið líður. Þú tekur hlutunum öðruvísi og lætur alls ekki blása þig um koll. Sönn ást er það eina sem virkar þetta árið hjá þér, elskan mín, og þú munt vita það 100% hvað er sönn ást eða hvað er eitthvað sem þú átt ekki að vera að dvelja við. Það er alveg magnað og þú þarft að skilja að fólk sér þig allt öðrum augum en þú heldur að það geri. Þú hefur svo mikinn kraft og tign yfir þér og það eru svo margir sem langar að vera eins og þú. Brotin sjálfsmynd dregur þig niður og þetta er árið sem þú átt að byggja upp sjálfsmynd þína. Hafðu það í huga að það er engum að kenna og engum að þakka hver þú ert. Heldur skapar þú orkuna þína með því að trúa á að þú getir þetta og getir hitt sem þú vilt og sért það sem þú vilt vera og leyfir þér að vera montið af sjálfu þér. Knús og klapp, Sigga KlingFræg Ljón: Cara Delevingne fyrirsæta, Ágústa Eva Erlendsdóttir, leik- og söngkona, Halldóra Geirharðsdóttir leikkona, Birgitta Haukdal söngkona, Barack Obama Bandaríkjaforseti, Ásdís Rán fyrirsæta, Gísli Gíslason geimfari, Geir Ólafsson söngvari, Þórunn Antonía alheimsstjarna, Albert Eiríks, matgæðingur af bestu sort, Jón Óttar Ragnarsson, athafna- og fjölmiðlamaður, Jennifer Lopez söngkona, Diddú, Sirrý Arnardóttir fjölmiðlakona, Arnór Dan, söngvari, Agent Fresco, Ana Mafalda, besta húshjálp í heimi, Sema Erla Serdar, baráttukona, Rósa Ingólfsdóttir, sjónvarpskona, Anton Máni Svansson, kvikmyndaframleiðandi.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Æðisleg tilfinning að þurfa ekki að geðjast fólki Tónlist „Tíu ár en enginn hringur“ Makamál Hjólhýsabyggðin á Laugarvatni og Húsið á Eyrarbakka Lífið „Þetta var svolítið biblíuleg mynd“ Lífið Páll Óskar genginn í það heilaga: „Besti dagur lífs okkar“ Lífið Líkt við apa og klappað eins og hundi Lífið Veltir fyrir sér hvort hann sé dottinn úr tísku Lífið Krabbameinið sem týndist: „Fyrst sagði ég bara fokk!“ Áskorun Svar við spurningu lesanda: Hvað má fróa sér oft í viku? Lífið Ósanngjarnt hvernig stúlkan var dregin inn í umræðu sem var að miklu leyti „algjör þvæla“ Lífið Fleiri fréttir Hjólhýsabyggðin á Laugarvatni og Húsið á Eyrarbakka „Þetta var svolítið biblíuleg mynd“ Bein útsending: Heimir Guðjóns og Höddi Magg í einvígi aldarinnar Kappakstur milli Hjálmars og Magneu Tískan sýndi trúnaðarbrest í hruninu Páll Óskar genginn í það heilaga: „Besti dagur lífs okkar“ Kastast í kekki milli Carragher og kærastans Veltir fyrir sér hvort hann sé dottinn úr tísku Óhefðbundinn páskamatseðill að hætti Sigurðar Laufdal á OTO Knattspyrnufólk og bransastjörnur fjölmenntu í bíó Líkt við apa og klappað eins og hundi Barnalán hjá Batman Svar við spurningu lesanda: Hvað má fróa sér oft í viku? „Ég get ekki gert upp á milli barna“ Þingforseti, borgarfulltrúi og Frikki Dór í fjölmennu útgáfuhófi Handboltagoðsögn selur glæsihús í Garðabæ Bein útsending: Veglegir vinningar í páskabingói Blökastsins Ætlaði sér alltaf að verða leikari Júlí Heiðar og Þórdís eiga von á stelpu: „Djöfull var ég tekin“ Sacha Baron Cohen æfareiður út í Rebel Wilson Chess After Dark strákarnir boða til einvígis aldarinnar Arnar Grant og Vítalía á kaffihúsi og RÚV þrenna í miðborginni Fjandinn laus þegar málshættina vantar Palli snöggreiddist þegar hann var sakaður um að hafa verið tjokkó Undurfagrar páskaskreytingar Keypti íbúðina af huggulegustu hommum landsins Myndaveisla: Bjarni Ben skálaði fyrir einstökum Audi Eyþór stillti Eivøru upp við vegg og lét hana flytja lagið Running Up That Hill „Harry Klein“ er látinn Stjörnulífið: Hlustendaverðlaunin, ferðalög og afmælisgleði Sjá meira