Viðskipti erlent

Nokia með endurkomu á snjallsímamarkað

Anton Egilsson skrifar
Nokia snýr aftur.
Nokia snýr aftur. Vísir/Getty
Eftir nokkurra ára hlé er snjallsími undir formmerkjum Nokia væntanlegur á markað. Síminn verður kynntur til leiks á fyrri hluta þessa árs en hann mun bera heitið Nokia 6 og verður seldur í Kína. Mashable greinir frá.

Síminn sem verður með Android stýrikerfi er hugsaður sem andsvar við Samsung Galaxy S7.  Mun síminn koma til með að kosta tæpar 30 þúsund krónur.

„Snjallsímamarkaður Kína er sá stærsti  í heiminum í dag og þar ríkir einnig mesta samkeppnin. Það er okkar metnaður að færa neytendum gæða vöru sem mætir öllum þörfum þeirra.“ Segir í tilkynningu frá Microsoft mobiles.

Finnska tæknifyrirtækið Nokia sem var lengi vel leiðandi á farsímamarkaði náði sér aldrei á strik þegar snjallsímavæðingin fór á flug. Fór svo að hugbúnaðarrisinn Microsoft keypti farsímahluta fyrirtækisins árið 2014 en þau viðskipti hafa ekki reynst Microsoft arðsöm.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×