Íslenski boltinn

Ingvar Þór Kale ver mark Skagamanna

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ingvar Þór Kale spilar á Skaganum í sumar.
Ingvar Þór Kale spilar á Skaganum í sumar. vísir/anton brink
Markvörðurinn Ingvar Þór Kale er búinn að semja við ÍA í Pepsi-deild karla og spilar með þeim í sumar, samkvæmt heimildum Vísis.

Ingvar var án liðs eftir að samningur hans við Val rann út eftir tímabilið. Hann missti sæti sitt í Valsliðinu vegna meiðsla snemma síðasta sumar til Antons Ara Einarssonar og hætti hjá Hlíðarendafélaginu í ágúst.

Skagamenn þurftu á markverði að halda eftir að Árni Snær Ólafsson sleit krossband síðasta haust en Árni hefur varið mark liðsins undanfarin ár og fengið mikið lof fyrir sína frammistöðu. Meiðslin mikið áfall fyrir hann.

Ingvar Kale er þrautreyndur markvörður sem verður 34 ára gamall á árinu. Hann er uppalinn í Víkingi en spilaði síðustu tvö ár með Val og varð bikarmeistari bæði árin. Hann spilaði þó ekki bikarúrslitaleikinn síðasta sumar.

Hann varð Íslands- og bikarmeistari með Breiðabliki þegar hann spilaði þar frá 2009-2012 en áður hjálpaði hann uppeldisfélagi sínu Víkingi tvisvar sinnum að komast upp í deild þeirra bestu og halda því þar.

Skagamenn höfnuðu í áttunda sæti í fyrra eftir að vera nokkuð óvænt í Evrópubaráttu langt inn í mótið en liðið fékk á sig 33 mörk í 22 leikjum, flest mörk allra liða sem fengu 30 stig eða fleiri.

Uppfært 12:02:

Knattspyrnudeild ÍA er búin að staðfesta komu Ingvars sem skrifaði undir eins árs samning við Skagamenn. Hann segir í fréttatilkynningu félagsins: „ÍA er frábær klúbbur með mikla hefð og merka sögu. Ég hafði mikinn áhuga um leið og það var haft samband við mig og ég tel mig hafa mikið fram að færa til að hjálpa liðinu í baráttunni næsta sumar. Síðasta sumar gekk ekki jafnvel hjá mér eins og árin þar á undan og ég er orðinn hungraður í árangur aftur.”




Fleiri fréttir

Sjá meira


×