Lífið

Svona býr mesti glaumgosi heims

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bilzerian er svakalegur djammari.
Bilzerian er svakalegur djammari.
Glaumgosinn og pókerspilarinn Dan Bilzerian er þekktur fyrir heldur skrautlegan lífstíl en hann hefur efnast gríðarlega á fjárhættuspilum. Bilzerian var hér á landi í sumar og vakti töluverða athygli.

Bilzerian er 36 ára Bandaríkjamaður en af armenskum ættum. Hann er einna þekktastur fyrir Instagram reikning sinn en hann er í 44. sæti yfir þá sem eru með flesta fylgjendur forritsins. Þar deilir hann myndum af háfleygum lífstíl sínum.

Bilzerian er að selja húsið sitt í Las Vegas og er söluverðið 5,1 milljón Bandaríkjadollara eða því sem samsvarar 580 milljónir íslenskar krónur.

Hann býr hátt og á allt það flottasta eins og sjá má ég er að neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×