Formúla 1

Hulkenberg býst við erfiðu 2017 hjá Renault

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Nico Hulkenberg sem er kominn til liðs við Renault frá Force India.
Nico Hulkenberg sem er kominn til liðs við Renault frá Force India. Vísir/Getty
Nico Hulkenberg býst ekki við kraftaverkum á næsta ári hjá Renault liðinu. Hulkenberg er að koma til Renault frá Force India.

Renault átti erfitt tímabil í ár sem var fyrsta ár Renault eftir að liðið snéri aftur til keppni í Formúlu 1. Hulkenberg segist búast við því að liðið verði áfram í mikilli uppbyggingu á næsta ári og það verði því annað erfitt tímabil.

„Ég held að næsta ár verði enn mikil uppbygging í gangi. Maður verður að vera raunsær, liðið er að ljúka afar erfiðu ári, annað árið í röð,“ sagði Hulkenberg.

„Þegar Renault keypti liðið í fyrra ar það í erfiðri stöðu, sérstaklega í upphafi tímabils, það fór ekki mikil vinna í að þróa bílinn,“ bætti Hulkenberg við.

„Ég vona að næsta ár verði ögn betra en ég býst ekki við að verða í topp sex strax, það verður líklega erfitt að komast í topp 10,“ sagði Hulkenberg að lokum.

Hulkenberg impraði á því að hann væri kominn til að vera hjá Renault. Hann hefur því ekki áhyggjur ef úrslitin sem hann óskar sér koma ekki strax.


Tengdar fréttir

Schumacher fjölskyldan stofnar góðgerðarsamtök

Fjölskylda Michael Schumacher, sjöfalda heimsmeistarans í Formúlu 1, hefur sett á laggirnar góðgerðarsamtök í hans nafni. Samtökin bera heitið Keep Fighting á ensku eða Berjumst áfram á íslensku.

Alonso: Ég vil verða heimsmeistari með McLaren-Honda

Fernando Alonso ökumaður McLaren liðsins sagði starfsfólki liðsins að hann væri ekki á förum frá liðinu. Þrátt fyrir orðróm um að hann væri líklegur til að fylla sæti Nico Rosberg hjá Mercedes.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×