Jól

Jóladagatal Hurðaskellis og Skjóðu - 15. desember

Systkinin Hurðaskellir og Skjóða ætla að föndra eitthvað skemmtilegt á hverjum einasta degi fram að jólum. 

Skjóða er að vísu með tíu tröllaputta og Hurðaskellir er algjör jólasveinn en þau hafa ótrúlega gaman að því að föndra og láta því ekki ónákvæmni eða brussugang á sig fá. Um leið og þau föndra kenna þau öðrum að gera jólaskraut, piparkökuhús, jólakort og fleira sniðugt.

Bólu, systur þeirra Hurðaskellis og Skjóðu hefur verið boðið í partý. Partý þar sem allir í veislunni eiga að vera klæddir í ljóta jólapeysu. Aumingja Bóla á ekkert til að fara í svo Hurðaskellir og Skjóða ákveða að föndra bara fyrir hana alveg ótrúlega ljóta og hallærislega jólapeysu. Hvernig ætli það gangi?

Frekari upplýsingar má finna á jolasveinar.is og á Facebook-síðu jólasveinanna.


Tengdar fréttir

Jóladagatal Hurðaskellis og Skjóðu - 14. desember

Það eru bara tíu dagar til jóla og eflaust einhverjir byrjaðir að pakka inn jólagjöfunum. Í dag ætla þau Hurðaskellir og Skjóða að kenna okkur að búa til fallega merkimiða til að setja á pakkana.

Jóladagatal Hurðaskellis og Skjóðu - 11. desember

Það er mikil spenna í Grýluhelli í dag enda fyrsti jólasveinninn á leiðinni til byggða í nótt. Hurðaskellir og Skjóða bregða þó ekki frá vananum og föndra með ykkur ellefta daginn í röð.

Jóladagatal Hurðaskellis og Skjóðu - 13. desember

Í dag ætla Hurðaskellir og Skjóða að kenna ykkur að senda rafræna jólakveðju til vina og fjölskyldu sem eru kannski langt í burtu og þið náið ekki að hitta fyrir jólin. Eða þau ætla að reyna að kenna ykkur það, þeim gengur ekkert allt of vel sjálfum.






×