Sport

Conor er bara pappírsmeistari

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það vilja allir taka beltin af Conor.
Það vilja allir taka beltin af Conor. vísir/getty
Það eru allir til í að rífa kjaft við Conor McGregor í von um að ná eyrum írska heimsmeistarans og fá að berjast við hann. Það þýðir einfaldlega stærsti útborgunardagur lífsins að berjast við Conor.

Nú er það Tony Ferguson léttvigtarkappi sem hefur ákveðið að láta Conor heyra það. Sá mun væntanlega mæta Khabib Nurmagomedov í bardaga um réttinn til þess að keppa við Conor um titilinn í léttvigtinni.

Írinn ætlar að taka sér nokkurra mánaða frí eftir mjög erfitt ár sem endaði með því að hann varð fyrsti tvöfaldi meistarinn hjá UFC.

Ferguson og Nurmagomedov hafa í tvígang átt að mætast en í bæði skiptin hefur þurft að fresta bardaganum vegna meiðsla.

Tony Ferguson.vísir/getty
Nú bendir allt til þess að þeir muni mætast á nýju ári um réttinn til þess að berjast við Conor. Sá bardagi fer samt líklega ekki fram fyrr en í fyrsta lagi næsta sumar. Næsta haust er líklegra.

„Conor er bara að handvelja sér andstæðinga. Hann er bara pappírsmeistari. Þegar menn komst i slíka stöðu geta þeir fylgst með andstæðingum sínum. Conor er enginn meistari í mínum augum,“ sagði Ferguson voða harður en hann er ekki lítið hrifinn af sjálfum sér.

„Conor er bara búinn að keppa einu sinni í léttvigt og ætlar nú í frí. Khabib er svo búinn að vera mikið fjarverandi. Ég er eini maðurinn sem er að láta til mín taka í þessum þyngdarflokki. Mín verður minnst sem goðsagnar. Það mun gerast. Ég fer í heiðurshöll UFC.“

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×