Innlent

Brú yfir Fossvog forsenda uppbyggingar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hér má sjá hvar búist er við að brúin komi yfir Fossvoginn.
Hér má sjá hvar búist er við að brúin komi yfir Fossvoginn. Vísir.

Átta hundruð íbúðir munu rísa á Kársnesi í framtíðinni. Þegar hefur verið samþykkt skipulag tveggja reita fyrir fjölbýlishús með um 250 íbúðum og munu framkvæmdir við þær hefjast á næsta ári. Að auki er gert ráð fyrir 550 íbúðum á þróunarsvæði vestast á Kársnesi.



Samkvæmt upplýsingum frá bæjarstjórnarskrifstofum eru þessu til viðbótar tæplega 400 íbúðir í byggingu í bryggjuhverfinu á Kársnesi sem þegar hefur verið skipulagt og er í uppbyggingu.



Á svæðinu vestast á Kársnesi er gert ráð fyrir blandaðri byggð íbúða og atvinnuhúsnæðis, vistvænum samgöngum, verslun og þjónustu. Samhliða uppbyggingu verður reist brú fyrir gangandi, hjólandi og almenningsvagna yfir Fossvog sem tengja mun svæðið við háskólasvæði Háskólans í Reykjavík, Háskóla Íslands og miðbæ Reykjavíkur.

Theódóra S. Þorsteinsdóttir, formaður skipulagsnefndar Kópavogs.

Gert er ráð fyrir að uppbygging svæðisins taki á bilinu 10-20 ár en unnið hefur verið að skipulagslýsingu sem er undanfari að deiliskipulagi.



Er skipulagslýsingin núna í kynningarferli hjá bænum.



„Við erum auðvitað að fara í alveg gríðarlega mikla hreinsun og uppbyggingu,“ segir Theódóra S. Þorsteinsdóttir, formaður skipulagsnefndar Kópavogs. Hún segir þennan stað alveg mega við hreinsuninni því svæðið hafi drabbast niður.



„En við viljum snúa við þessari þróun og hefja uppbyggingu,“ segir hún. 



Theódóra segir að forsendan fyrir uppbyggingunni sé brúin milli Kársness og Fossvogs.



„Við þurfum að styðja við uppbyggingu borgarlínunnar með góðri samgöngustefnu af því að við getum ekki farið í þessa uppbyggingu nema að við þjónustum íbúana með góðum almenningssamgöngum, góðum hjólastígum og betra flæði,“ segir Theódóra og bætir við að bærinn hafi fengið verkfræðistofu til þess að reikna út framtíðarumferðarspá.

Hér má sjá tölvuteiknaða mynd af Kársnesbraut, eins og hún yrði eftir breytingu.

Það þurfi að bregðast við þeirri þróun sem spáð er á næstu 25-30 árum á höfuðborgarsvæðinu að íbúum fjölgi um 70 þúsund manns.



„Þannig að við erum með langtímaplan og erum að horfa á þetta svæði sem langtímatækifæri,“ segir Theódóra. Væntanleg brú þarf að fara í umhverfismat og verið er að vinna að undirbúningi þess. Þrír aðilar vinna að verkefninu, en auk Kópavogs eru það Reykjavíkurborg og Vegagerðin. 

Blönduð byggð íbúða og atvinnuhúsnæðis, vistvænar samgöngur, verslun og þjónusta verða áhersluatriði á Kársnesi.

„Við vorum að breyta hjá okkur aðalskipulagi af því að við gerðum ekki ráð fyrir almenningssamgöngum þegar við vorum að vinna aðalskipulag á síðasta kjörtímabili. Reykjavík var með það hjá sér þannig að við erum að samræma það,“ segir Theódóra og bætir við að brúin sé ekki hugsuð fyrir almenna bílaumferð.



Kópavogur tekur á móti athugasemdum og ábendingum við skipulagslýsingarnar tvær til 22. desem­ber nk. Athugasemdir skulu sendast á skipulag@kopavogur.is eða á skipulags- og byggingardeild umhverfissviðs í Fannborg 6, 200 Kópavogi.

Kársnes.

Tengdar fréttir

Gegnsæ göng í stað brúarinnar

Meta á hvort hjóla- og göngutenging yfir Fossvog geti verið um gegnsæ og vatnsheld göng á botni vogsins. „Siglingamenn og fleiri hafa lýst áhyggjum vegna vegtengingar yfir Fossvog.

Fossvogsbrú komin inn á aðalskipulag

"Vistvænar samgöngur“ yfir Fossvog eru nú komnar inn á aðalskipulag bæði í Kópavogi og í Reykjavík eftir að nýsamþykktar breytingar á aðalskipulagi hvors sveitarfélags fyrir sig.

Fjórir keppa áfram á Kársnesi

Sundlaug úti í Fossvoginum og sporvagn eru meðal hugmynda í tillögum sem komust áfram í samkeppni um skipulag á Kársnesi. Hluti af keppni á Norðurlöndunum þar sem lokaverðlaun eru 15,7 milljónir króna.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×