Innlent

Þessir Íslendingar kvöddu á árinu 2016

Atli Ísleifsson skrifar
Edda Heiðrún Backman, Jenna Jensdóttir, Margrét Indriðadóttir, Gunnar Eyjólfsson, Ragnhildur Helgadóttir og Erlingur Gíslason féllu öll frá á árinu.
Edda Heiðrún Backman, Jenna Jensdóttir, Margrét Indriðadóttir, Gunnar Eyjólfsson, Ragnhildur Helgadóttir og Erlingur Gíslason féllu öll frá á árinu.
Margir þjóðþekktir Íslendingar kvöddu þennan heim á árinu, þar á meðal fyrrverandi ráðherra, einhverjir ástsælustu listamenn landsins, einn vinsælasti barnabókahöfundurinn og fyrrverandi fréttastjóri hjá Ríkisútvarpinu.

Vísir tók saman nokkur nöfn sem Íslendingum ættu að vera kunnug.

Stjórnmálin

Eggert Haukdal, bóndi og fyrrverandi þingmaður, lést 2. mars, 82 ára að aldri. Eggert var þingmaður Suðurlands fyrir Sjálfstæðisflokk á árunum 1978 til 1995. Hann var utan þó utan flokka á árunum 1979 til 1980.

Guðfinn­ur Sig­ur­vins­son, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri í Kefla­vík, lést í nóvember, 80 ára að aldri. Hann átti sæti í bæjarstjórn Keflavíkur á árunum 1976 til 1994 og gegndi embætti bæjarstjóra á árunum 1988 til 1990.

Jón Skaftason, fyrrverandi þingmaður, andaðist 3. júní, 89 ára að aldri. Jón var alþingismaður fyrir Framsóknarflokkinn í Reykjaneskjördæmi á árunum 1959 til 1978. Að þingmennsku lokinni gegndi Jón embætti yfirborgarfógeta í Reykjavík á árunum 1979 til 1992 og sýslumanns í Reykjavík 1992 til 1994.

Kristín Halldórsdóttir komst á þing árið 1983.Mynd/Alþingi
Kristín Halldórsdóttir, fyrrverandi þingmaður, lést þann 14. júlí, 76 ára að aldri. Kristín var ein þriggja kvenna sem náði kosningu til þings þegar stofnað var til Samtaka um kvennalista fyrir þingkosningarnar 1983. Hún sat á þingi á árunum 1983 til 1989 og 1995 til 1999. Kristín var þingmaður Reykjaness.

Ragnhildur Helgadóttir, fyrrverandi alþingismaður, ráðherra og forseti neðri deildar Alþingi, lést 29. janúar, 85 ára að aldri. Ragnhildur var þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík á árunum 1956 til 1963, 1971 til 1979 og 1983 til 1991. Þá var hún ráðherra menntamálaráðherra á árunum 1983 til 1985 og heilbrigðis- og tryggingamála 1985 til 1987, auk þess að gegna embætti forseti neðri deildar þingsins á árunum 1961 til 1962 og 1974 til 1978.

Stefán Gunnlaugsson, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri í Hafnar­f­irði og þingmaður, lést 23. mars, níræður að aldri. Stefán var þingmaður Alþýðuflokksins á árunum 1971 til 1974.

Steinunn Finnbogadóttir, ljósmóðir, borgarfulltrúi og aðstoðarráðherra lést í desember, 92 ára að aldri. Steinunn var í forystusveit kvenna sem létu til sín taka í félags- og stjórnmálum upp úr miðri síðustu öld. Var einn stofnenda og sat í stjórn Samtaka frjálslyndra og vinstri manna og var borgarfulltrúi flokksins í Reykjavík 1970 til 1974 og varaborgarfulltrúi 1974 til 1978. Árið 1971 varð Steinunn fyrsta konan á Íslandi til að gegna starfi aðstoðarráðherra, en hún var aðstoðarmaður Hannibals Valdimarssonar samgöngu- og félagsmálaráðherra til ársins 1973.

Menning og listir

Edda Heiðrún Backman, leikkona og myndlistarkona, lést 1. október, 58 ára að aldri. Edda Heiðrún útskrifaðist með leikarapróf frá Leiklistarskólanum árið 1983 og átti farsælan leikaraferil að baki bæði í sjónvarpi og á sviði. Hún greindist með MND árið 2004 sem varð til þess að hún hætti leiklistinni og sneri sér að leikstjórn. Á síðari árum gerði hún garðinn frægan sem myndlistarkona þar sem hún málaði bæði vatnslita- og olíumyndir með munninum.

Ei­rík­ur Smith Finn­boga­son list­mál­ari lést þann 9. sept­em­ber, 91 árs að aldri. Eiríkur hélt á starfsævi sinni fjölda einkasýninga auk þess að taka þátt í samsýningum.

Erlingur Gíslason leikari lést þann 8. mars, 82 ára gamall. Erlingur starfaði leikari og leikstjóri hjá Þjóðleikhúsinu, leikhópnum Grímu og Leikfélagi Reykjavíkur, auk þess að hann fór með hlutverk í fjölda hlutverka í kvikmyndum, sjónvarps- og útvarpsþáttum.

Gunnar Eyjólfsson leikari lést 21. nóvember, níræður að aldri. Hann lék í vel á annað hundrað leiksýningum, flestar í Þjóðleikhúsinu, á löngum og farsælum ferli. Hann hóf sinn leikferil í sýningunni Kaupmaður í Feneyjum með Leikfélagi Reykjavíkur árið 1945 og varð fastráðinn leikari við Þjóðleikhúsið árið 1961 þar sem hann fór með fjölda burðarhlutverka. Meðal annars lék hann titilhlutverkin í Pétri Gaut, Hamlet, Fást, Ödípus konungi og Galdra-Lofti. Þá lék Gunnar í fjölda kvikmynda, sjónvarpsmynda og útvarpsleikrita, meðal annars í Milli fjalls og fjöru, 79 af stöðinni, Atómstöðinni, Hafinu, Mömmu Gógó, Lénharði fógeta og Paradísarheimt.

Hallmar Sigurðsson, leikari og leikstjóri.Vísir/GVA
Hallmar Sigurðsson, leikari og leikstjóri, lést í janúar 63 ára að aldri. Hallmar var meðal annars leikhússtjóri Leikfélags Reykjavíkur, verkefnisstjóri leiklistar við Ríkisútvarpið og framkvæmdastjóri Arkitektafélags Íslands á löngum ferli. 

Ingibjörg Haraldsdóttir, ljóðskáld og þýðandi, lést í nóvember, 74 ára að aldri. Fyrsta ljóðabók Ingibjargar kom út 1974, en eftir hana liggja fimm ljóðabækur, tvö ljóðasöfn og endurminningabók. Hún hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2002 fyrir ljóðabókina Hvar sem ég verð, en bókin var einnig tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.

Jenna Jensdóttir, rithöfundur og kennari, lést í mars, 97 ára að aldri. Eftir hana liggur fjöldinn allur af barna og unglingabókum, en Jenna er þekktust fyrir Öddubækurnar sem seldust í yfir 60 þúsund eintökum. Að auki lét hún menntamál barna sig varða en hún kenndi börnum í áratugi.

Jón Stef­áns­son, org­an­isti og kór­stjóri Lang­holts­kirkju í Reykja­vík, lést 1. apríl, 69 ára að aldri. Á starfs­ferli sín­um byggði Jón upp viðamikið kór­starf með kór­um Lang­holts­kirkju.

Ólöf Eld­járn, þýðandi og rit­stjóri, lést þann 15. ág­úst, 69 ára að aldri. Ólöf starfaði lengi sem versl­un­ar­stjóri Bók­sölu stúd­enta, var rit­stjóri hjá Bóka­for­lagi Máls og menn­ing­ar og síðar Eddu út­gáfu á árunum 1990 til 2007, þar sem hún stýrði meðal ann­ars fræðirita- og fag­bóka­út­gáfu und­ir merkj­um Heimskringlu. Síðustu árin var Ólöf sjálf­stætt starf­andi þýðandi og yf­ir­les­ari.

Páll Stein­gríms­son kvik­mynda­gerðarmaður lést í nóvember, 86 ára að aldri. Páll vann að gerð fjölda heim­ild­ar­mynda um nátt­úru og dýra­líf, en hann var einn af stofn­end­um Fé­lags kvik­mynda­gerðarmanna.

Þráinn Karlsson leikari lést þann 22. maí, 76 ár að aldri. Hann hóf að leika með Leikfélagi Akureyrar árið 1956 og varð þar fastráðinn þegar það varð að atvinnuleikhúsi 1971.

Alyson J.K. Bailes var bresk en starfaði lengi á Íslandi og bar sterkar taugar til landsins.Vísir/Valli
Skólar, íþróttir, fjölmiðlar og fleira

Alyson J.K. Bailes, aðjúnkt við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, lést í Skotlandi 29. apríl, 67 ára að aldri. Hin skoska Alyson starfaði í bresku utanríkisþjónustunni um þrjátíu ára skeið og var forstöðumaður Alþjóðafriðarrannsóknastofnunarinnar SIPRI í Stokkhólmi á árunum 2002 til 2007. Hún tók að því loknu við starfi aðjúnkts við Háskóla Íslands og bar sterkar taugar til Íslands.

Árni Páls­son, fyrr­ver­andi sókn­ar­prest­ur í Kópa­vogi, lést 16. sept­em­ber. Árni fæddist 1927 og var sókn­ar­prest­ur í Kárs­nesprestakalli í Kópa­vogi 1971 til 1990 og svo á Borg á Mýr­um á árunum 1990 til 1995.

Dóra Hlín Ing­ólfs­dótt­ir rann­sókn­ar­lög­reglu­kona lést þann 22. desember, 67 ára að aldri. Hún var önn­ur af tveim­ur fyrstu kon­unum til að gegna almennum lögreglustörfum á Íslandi. Hún var mik­ill brautryðjandi í meðferð kyn­ferðis­brota inn­an lög­regl­unn­a og var ein af stofn­end­um Stíga­móta.

Ein­ar Lax­ness sagn­fræðing­ur lést 23. maí, 84 ára að aldri. Einar var for­seti Sögufélags 1978 til 1988 og rit­stjóri Sögu, tíma­rits Sögu­fé­lags, á árunum 1973 til 1978. Eft­ir hann liggur fjöldi rit­verka, grein­a og rit­gerða.

Friðrik Ásmunds­son, skip­stjóri og fyrr­ver­andi skóla­stjóri, lést þann 19. nóvem­ber, 81 árs að aldri. Hann varð skóla­stjóri Stýri­manna­skól­ans í Vestmanna­eyj­um 1975 og gegndi stöðunni í heil 27 ár. 

Guðrún Ólafía Jóns­dótt­ir arki­tekt lést þann 2. sept­em­ber, 81 árs að aldri. Hún stýrði TGJ – Teiknistofu Guðrúnar Jónsdóttur, frá árinu 1984, en hafði þar áður verið for­stöðumaður Þró­un­ar­stofn­un­ar Reykja­vík­ur, síðar Borg­ar­skipu­lags Reykja­vík­ur á árunum 1980 til 1984.

Guðríður Ósk Elías­dótt­ir, fyrrverandi varaforseti Alþýðusambandsins og fyrrver­andi formaður Verka­kvenna­fé­lags­ins Framtíðar­inn­ar í Hafnar­f­irði, lést í janúar, 93 ára að aldri.

Ingunn Einarsdóttir, ein fyrsta afrekskona Íslendinga í frjálsum íþróttum, lést í nóvember, 61 árs að aldri. Ingunn var mikill brautryðjandi kvenna í íþróttum og var á tímabili ósigrandi í spretthlaupum hér á landi. Átti hún fjölda landsmeta í 100 m, 200 m og 400 m hlaupum. 

Katrín Pálsdóttir.Vísir/GVA
Katrín Pálsdóttir, fyrrverandi fréttamaður, lést í október, 67 ára að aldri. Hún starfaði á Fréttastofu útvarpsins frá árinu 1982 til 1987 og á Fréttastofu Sjónvarpsins frá árinu 1987 til 2007. Þá starfaði hún um tíma sem dagskrárstjóri Rásar 2 og sem stundakennari við Háskóla Íslands, Háskólann á Bifröst og Háskólann í Reykjavík. Síðustu ár starfaði hún hjá Sölufélagi garðyrkjumanna og var formaður menningarnefndar Seltjarnarnessbæjar.

Margrét Indriðadóttir, fyrrverandi fréttastjóri Ríkisútvarpsins, lést þann 18. maí. Hún fæddist árið 1923 og vann á fréttastofu Útvarps frá 1949 til 1986 og varð árið 1968 fyrst kvenna á Norðurlöndum til að gegna stöðu fréttastjóra á ríkisfjölmiðli.


Tengdar fréttir

Þau kvöddu á árinu 2016

Svo virðist sem hver tónlistargoðsögnin á fætur annarri hafi fallið frá á árinu – þeirra á meðal Prince, Leonard Cohen og David Bowie.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×